Verkefni (Lbs489,4to 30v)
Úr Sigurdurmalari
- Handrit: 489 4to
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: Engin
- Ritari:
- Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)
- Lykilorð: umræðuefni, spurningar, kappræður
- Efni: Kappræðuspurningar. Mikið efni endurtekið frá fyrri spurningalistum.
- Nöfn tilgreind: G. Gunnarsson, Sveinn Skúlason, Gísli Magnússon, Matthías Jochumsson, Sigurður Guðmundsson, Árni Gíslason, Kristján Jónsson, Þorkell Bjarnason (?), Fritz Zeuthen
Texti

49. Böl er búskapur ec þetta á að sanna að satt sje.
50. Hverskonar böl höfðu fornmenn?
51. Er ekki trúarbrögð óþörf en íslenzki faldurinn
þó þarfur? (S. Guðmundsson.)
52. Eðli og lækning giktarinnar? (Zeuthen)
53. Því er byldinum sjaldnar beitt í hinni nýju
læknisfræði en í hinni eldri?
54. Telst það ekki til hreinlyndis að gefa kunningja
sínum á kjaptinn?
55. Hvernig stendur á, að mönnum á hverri öld
sem er hættir við að lofa fyrri aldirnar,
en gjöra lítið úr sinni öld (G. Magn.)
56. Um djöfulinn, framfarir hans og aptur-
farir? (Þor. Bjarnason)
57. Hvort er meira gagn að búnarfjelagi eða lestrar-
fjelagi? (G. Gunnarsson)
58. Á hverjum aldri þykir bóknám rjett byrjandi?
og hvenær fyrst byrjandi og hvernær síðast
byrjandi?
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
- Dagsetning: 2024
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: