Verkefni (Lbs489,4to 29v-30r)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:30 eftir Bjartur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:30 eftir Bjartur (spjall | framlög) (Bjó til síðu með „* '''Handrit''': 489 4to * '''Safn''': [http://landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn] * '''Dagsetning''': Engin * '''Ritari''': ---- * '''Efni''': '''Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)''' ---- * '''Lykilorð''': umræðuefni, spurningar, kappræður * '''Efni''': Kappræðuspurningar. Mikið efni endurtekið frá fyrri spurningalistum. * '''Nöfn tilgreind''': G. Gunnarsson, Sveinn Skúlason, Gísli Magnússon, Matthías Joc...“)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

Texti

15. hverjir eru helztu ókostir við húsbyggingar Íslendinga?

(S. Guðmundsson)

16. Hversvegna er lausung skaðleg og þó svo almenn

og hvernig má úr henni bæta? (Þork. Bjarnason).

17. Hverjir eru kostir og ókostir verzlunarhags

vors eins og hann er nú?

18. Stutt yfirlit yfir helztu bragarhætti í íslenzkum

kveðskap frá fyrstu tímum þangað til nú,

hvernær menn foru að yrkja rímur og í

hverju rímnabragarhættir eru frá-

brugðnir hinum eldri og um hvert leyti

menn fóru að yrkja ísl. kvæði með latnezk-

um bragarhætti? (J. Þorkelsson).

19. Hverjir eru kostir og ókostir við lausakaupmanna

verzlun?

20. Hver er munur á sk y i ri í fornöld og skiri nú

á dögum og hver er munur á því í ýmsum

fjórðungum landsins? (Sig. málari).

21. Það er gefið að Eyrarbakki heyri til flóanum

en hjer er beðið sönnunar fyrir því að nafnið

,,flóafífl" sje ekki annað en hótfyndni?

22. Voru Íslendingar lengra á leið komnir í menning

fyrir lok 14. aldar en í lok síð þeir hafa síðar komizt?

23. Hvað mælir með því, að hafa Lærða skólann í Reykjavík?

(Gísli Magnússon

24. Hvað mælir með því, að hafa alþingi Íslendinga í Reykjavík? (Sv. Sk.)

25. Hvað kemur til að landslíðurinn hatast við Reykjavík?

26. Hver nauðsyn er á því að hafa spítala í hverjum landsfjórðungi?

27. Hvernig stendur á því, að ýmis þarfleg fyrirtæki útlendra

manna hjer á landi, er að framförum lúta bera svo lítinn

ávöxt?

28. Hverja kosti og ókosti hefir leikurinn Kjartan og Guðrún

eftir Öhlenschläger. (Matth.Joch.)


29. Að sýna ganginn í einhverju leikriti eptir Shakepeare?

30. Að sýna ganginn í forngrískum sorgarleik?

31. Að sýna ganginn í einhverjum forngrískum eða rómversk-

um gleðileikÐ (G. Magn.)

32. Að sýna mismuninn í sorgarleikum forngrikkja og hinna

nýjari þjóða?

33. Að bera saman þjóðerni og lunderni Svía og Dana? (F. Zeuthen.

34. Hvernig koma Íslenzkir sveitamenn fram í verzlun sinni

35. Á fjelagið að gefa málefninu um Ingólfsvarðan auga

framvegis?

36. Um hegðun presta á Íslandi? (J. Hjaltalín)

37. Hvaða áhrif hefir útvortis guðsdýrkun á hugarfar

manna og hegðan (HE Helgesen)

39. Hvaða áhrif hafði kathólskan á samtíð sína

og seinni aldir? (Jón Bjarnason

40. Til hvers miðar fjelagskapur og hvað útheimtist

til góðs félagsskapar? (G. Gunnarsson)

41. Hvað Sambandið milli trúrækni og þunglyndis?

42. Að útlista hvernig trúarofsar og trúleysi víki frá hinni

rjettu trú?

43. Að skýra frá Rafsegulþræðinum og öðrum nýjum

framförum í eðlisfræðinni?

44. Er Jambus íslenzkur og má við hafa hann í ísl.

kveðskap?

45. Að lýsa háttum landsmanna og sjerstaklegum

sveitabrag (L. Benedictsson)

46. Hvaða áhrif hafa trúarbrögðin á þjóðfjelagið og ríkið og hver er

nauðsyn til að hafa prestastjettina?

47. Hvernig hefur íslenzkan breyst síðan um 1200 og að hve

miklu leyti geta menn nú hagnýtt sjer forn orð

í ræðu og riti? (J. Þorkelsson)

Hvað geta menn gjört til að efla stiptisbókasafnið?


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: