Verkefni (Lbs489,4to 41r)
- Handrit: 489 4to
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: Engin
- Ritari:
- Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)
- Lykilorð: umræðuefni, spurningar, þjóðmenning, bragfræði
- Efni: Spurningalisti án dagsetningar eða undirskrifta. Fornöld, Gissur Þorvaldsson, ástin, Ingólfur Árnason, að maðurinn sé dýr, upprunaleiki listasmíði fornra Norðurlandaþjóða, þjóðtrú, bókvísi Íslendinga, orðsifjafræði, bragarhættir í íslensku. Erfið skrift.
- Nöfn tilgreind: Þorsteinn Jónsson, Árni Gíslason, Þorvaldur Jónsson, Gísli Magnússon
Texti

1. Að færa sönnur á að Gissur jarl Þorvaldsson hafi verið
hyggnastur og þjóðhollasti höfðingi sinnar tíðar. SV.Sk.
2. Hvernig var skapferli Gissurar Þorvaldssonar? JÞ.
3. að lýsa fæðingu og uppvexti ástarinnar. JH.
4. Hvað ættu Íslendingar að gjöra til minningar um
Ingólf Arnarson og Íslandi bygging þegar þúsund
ár eru liðin frá því
hann risti bústað í Reykjavík
Ingólfur tók hjer bólsetu í
Reykjavík?
5. Að færa sönnur á það að maðurinn sje dýr í öllum
skilningi orðsins, Þorst.J.
6. Geta menn sannað að nokkurt listasmíði hafi verið
upprunalegt og einkennilegt hjá hinum fornu
Norðurlandaþjóðum?
7.
Að hve miklu leyti au
Hvort er það heldur, að ljóðstafir,
hendingar og annað, sem gjörir íslenzka bragi dýr'
kveðna
sje
skaldskaparfegurð þjóðar vorrar til
auk
eflingar eða spillingar?
M. Jochumsen
AGíslason
8. Hvað er hið sanna og skáldlega í draugatrú og álfatrú? MJochumsen
9. hefir bókvísi Íslendinga farið fram eða aptur á
þeirri öld sem nú er að líða? Þorv.Jonsson.
10. Hvort er
þ
betri búregla að skera veturgamalt fje
eða þrjavetra sauði. HEH.
11. Að hve miklu leyti er það nytsamt fyrir lærdóms-
manninn að læra saman stofna orðanna í hinum
ýmsu tungumálum? GMagnússon.
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
- Dagsetning: 2024
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: