Verkefni (Lbs489,4to 41v)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:56 eftir Bjartur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:56 eftir Bjartur (spjall | framlög) (Bjó til síðu með „* '''Handrit''': 489 4to * '''Safn''': [http://landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn] * '''Dagsetning''': Engin * '''Ritari''': ---- * '''Efni''': '''Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)''' ---- * '''Lykilorð''': umræðuefni, spurningar, þjóðmenning, bragfræði * '''Efni''': Spurningalisti án dagsetningar eða undirskrifta. Fornöld, Gissur Þorvaldsson, ástin, Ingólfur Árnason, að maðurinn sé dýr, upprunaleiki listasmíði fo...“)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

  • Lykilorð: umræðuefni, spurningar, þjóðmenning, bragfræði
  • Efni: Spurningalisti án dagsetningar eða undirskrifta. Fornöld, Gissur Þorvaldsson, ástin, Ingólfur Árnason, að maðurinn sé dýr, upprunaleiki listasmíði fornra Norðurlandaþjóða, þjóðtrú, bókvísi Íslendinga, orðsifjafræði, bragarhættir í íslensku. Erfið skrift.
  • Nöfn tilgreind: Þorsteinn Jónsson, Árni Gíslason, Þorvaldur Jónsson, Gísli Magnússon

Texti

11. Hverjir eru kostir og ókostir Verzlunar-

hags vors eins og hann er nú?

12. Stutt yfirlit yfir helztu bragarhætti

í íslenzkum kveðskap frá fyrstu tímum

þangað til nú, hvenær menn fóru að yrkja

rímur og í hverju rímnabragarhættirn-

ir eru frábrugðnir hinum eldri og

um hvert leyti menn fóru að yrkja

íslenzk kvæði með latínskum

bragarhætti.

13. Hverjir eru kostir og ókostir við

lausakaupmanna verzlun?

14. Hver er [ólæsilegt] munur á skyri í fornöld

og skyri nú á dögum, og mun á

því í ýmsum fjórðungum landsins.

15. Hvað hefur reikningsfræðin það

til síns ágætis að nauðsynlegt sje

að ætla henni eins mikinn tíma

við skólann og gjört er.

16. Gefiði Að Eyrarbakki heyri til Flóanum- að sanna að Flóafífl sé kki annað en Hotfindni.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: