1 bréf (JStilSG 68-26-06)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: B/2 1868, 2 Bréf Jóns Sigurðssonar til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Bréfasafn Þjóðminjasafns Íslands
  • Dagsetning: 26. júní 1868
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda: Reykjavík

  • Lykilorð: Forngripasafn
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

Khöfn 26. Juni 1868

  • Texti:

bls. 1


[Í vinstra horni stendur skrifað gamalt safnnúmer með blýanti:]
15. Fgrs.
[Í vinstra horni stendur skrifað með hendi Sigurðar:]
Svarað

Khöfn 26. Juni 1868

Elskulegi vin,
Nú get eg þá loksins sagt yður dálítið um forn-
gripa skýrsluna. Hún er nú búin, og verði þér að eiga
við mig um frágánginn á henni, ef yður mislíkar hann
í nokkru. Eg hefi vandað hann sem eg gat bezt. Þar-
næst hefi eg látið prenta umfram nokkuð til þess
að þið gætið haft það til meðferðar, og því sendir nú
félagið yður, eða ykkur Jóni Árnasyni 150 exx, sem
eru í pakka, með áskript til yðar, í stórum kassa til
Deildarinnar. Í öðrum kassa aflaungum, sem einnig
er sendur Deildinni, vegna þess eg vildi fá sendínguna
fragtfría, er grænlenzka dótið, og verðið þér að
gánga eptir því. Af skýrslunni ímynda eg mér þið
gætið gefið Exemplör þeim sem gefa Safninu, og jafn-
framt selt fyrir 1 rd. hinum, sem vildi styrkja safnið.
Honorar vil eg reyna að útvega yður, og eg hefi
skrifað Jens bróður mínum um það, en ef hann skyldi
eiga örðugt með að borga yður, þá verðið þér að hafa

bls. 2


þolinmæði um sinn. Mér væri líka kært að fá að vita
hjá yður, hvað þér hugsuðuð yður að þér vildið álíta
sanngjörn ritlaun, svo eg gæti talað fyrir þeim.
Hafið þér ekki fengið neitt til safnsins frá Vorså?
- Hann hefir lofað því, og mun víst senda einhverntíma.
Þér munuð halda fram yðar striki, og þá getið þér
verið vissir um að eitthvað sargast með tímanum.
Hér líkar mönnum skýrslan vel. Eg sendi Vorsá hana
og þeim forngripamönnum sem næstir standa. Ef
þér eða þið getið launað bókmentafélaginu með því, að
útvega því meðlimi og styrktarmenn, þá vona eg þér
sjáið að félagið geti aptur styrkt safnið, og það
mjög tilfinnanlega þegar tímar líða. Það er það sem
við eigum að læra með okkar litlu kröptum, ef við
viljum hafa nokkuð áfram.
Forlátið mér nú þenna stutta miða, og verið
ástsamlega kvaddur
Yðar skuld. elskandi vin
Jón Sigurðsson.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júní 2013

Sjá einnig

Matthías Þórðarson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1874, með athugasemdum og skýringum”, Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, Reykjavík 1929, bls. 34-107. Hér bls. 53-54.

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar