Bréf (SG02-107)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:08 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:08 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:107 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 16. jan. 1866 * '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarso...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:107 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 16. jan. 1866
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:


  • Texti:

bls. 1

*ATH í efra vinstra horn hefur Sig. skrifað:
Svarað

Ási 16. Janúar 1866
Kæri frændi!
Hafðu þökk fyrir tilskrifið af 8. Nov. síðstl.
eins og allt alúðlegt í sumar, þó við gættum
ekki að kyssast í myrkrinu hjá Brúsask.?*
Við ættum að vera þeir menn sem byggja
vinskap eða góða frændsemi á öðru en
kossaflensi, enda munum við báðir hafa verið
jafnsekir í þessari skilnaðarsynd; kannske
þetta hafi líka verið fyrirboði þess, að við
eigum aptur að sjást syðra, því þó eg vel
vitia að eg hafi ekki farið mér til mikils
sóma í sumar, og þyki líklegt að svo muni
lengst verða, þá fynnst mér þó, að bændurn-
ir megi ekki missast af þinginu, og víst
kvíði eg minna fyrir að koma suður í ann-
að sinn, þar sem eg þekki nú bæði menn
og siði; vest þyki mér að eg er hræddur um
að þingið sé á apturfaravegi. -
Eg skrifa nú Gullsa, og bið þig að herða
á honum það sem þú getur, að eg fái nú
bæði pörin og 2 koffur fyrir páskana, eg set
það upp við hann.
Illa launa landar Jóni okkar Sigurðs-
syni að vera að skrifa um hann skammir
útaf fjárhagsmálinu, því eg er þó sannfærð-
ur um, að hann hefur þar farið eptir bestu
sannfæringu, að því leyti sem hann leiðbeindi


bls. 2
þinginu, og alltaf þykir mér mjög ótrú-
legt að þessir herrar sjái betur fram í veg-
inn í því máli en hann. Mikið gaman
hefði mér þótt að fá að sjá þetta blað úr
Föðurlandinu, hefðir þú getað útvegað mér
það.
Þinn frændi
Ó. Sigurðsson



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: