Bréf (SG02-164)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 23:28 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 23:28 eftir Olga (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:164 Bréf frá Sigurði Péturssyni, bónda og hreppstjóra, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 15. sept. 1854
  • Bréfritari: Sigurður Pétursson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: hr. Guðmann, Ólafur?, hr. Thaae, hr. Havsteen, Ólafur Sigurðsson, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Sgr. Gunnar á Skíðastöðum, Jón Guðmundsson,

  • Texti:

bls. 1
Ási þann 15*ta*(upp) Septembr 1854

Ástkæri frændi! Óskir forsælustu?*!

Hafðu góðar þakkir fyrir þitt kjærkomna tilskrif
af 30*ta*(upp) Júní síðstliðna! samt get eg ekkert sagt þér
um reikningana frá herra Guðmanni fyrr en eg
gjæti í betra tómi feingið Olaf m til að yfirvega
þá. - Sömuleiðis hefi eg ekki tækifæri að senda þér
reikning yfir föðurarf þinn, sem eg hafði þó í
áformi að gjöra við þetta tækifæri, til þess þú vissir
hvurnig á öllu stæði milli okkar; og er nú mjög lítið
það eg vildi hafa vísað?* þér til hjá herra Thaae,
samt vona eg landsmenn þínir stirki þig töluverdt
í þetta sinn, bæði nær og fjær, sem margir ?* bjándi?*
landar okkar haf látið sjer ant um, bæði í orði sem
verki; já eg gleimdi að það eru 50*rd?**(upp)sem hra Havsteen
hefur lofað mjer þú skildir fá hjá yfirmanni hans
herra Thaae
Næstliðið vor giptist Ólafur minn Sigurlaugu dóttir
Sgr Gunnars á Skíðastöðum, þá léði?* eg honum hálfa
þessa jörðu og Jón bróðir m: með (muntu geta nærri
hvurnig á því stendur) fékk eg honum þá 3 kýr og
kvígu?*, 3 hross, 20 ær, 20 sauði, 20 gemlínga, og seldi
honum 12 ær að auki, fyrir hverjar Gunnar tillagði verðið
so Ólafr feingi mínar hagvonar?*, enn fremur misföll á
sauðfé þar, sem víða við fjöll og dali; þikir þér nú
nafni! ekki heldur farið að gánga af mjer? þú skildir
svara: eg þyrfti ekki heldur leingi með. - á orði?*
er líka að önnur Dóttir mín giptist á komandi vori
og mundi eg þá dálítið verða að stirkja hana líka
bls. 2
með nauðsynlegustu lífsmeðöl og þrinanlegustu?*
áhöldum; við erum við svipuð heilsukjör sem áður
þá altjafnt?* aukist ýmisleg gránkvæmi?* og lasleiki
gras?* og hría?* ár lítur út fyrir að verði í í(sic) betralagi
fiárabli(sic) allgóður líka, ef minn mottu sæta honum; enn
kornkaupin þikja heldur útdragssöm en löguð til þess:
að sökkva alþíðunni í óvinnandi skuldir, því heldur sem
nokkrir áttu fremur grannann sauðffénað næst: vor.
að síðustu kveðjum við öll frændsistkyn þín hjerna?*
þig með óskum als hins fullkomnasta! þinn(sic)
þinn vænlegur bróðir

S. Pétursson
bls. 3
AUÐ SÍÐ

bls. 4
ATH skrifað lóðrétt, þ.e. eftir langhlið


S:T:

Málara og Mindasmiðs S: Guðmundssyni

í Kaupmannahöfn




  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011