Bréf (SG02-232)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 14. júlí 2011 kl. 21:17 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2011 kl. 21:17 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02: 232 Bréf frá Sigurði Guðmundssyni til Stiftsyfirvalda * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': líklega 1873 * '''Bréfritari''': [[Sigurður Guðmu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02: 232 Bréf frá Sigurði Guðmundssyni til Stiftsyfirvalda
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: líklega 1873
  • Bréfritari: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning höfundar: Reykjavík
  • Viðtakandi: Stiftsyfirvöld
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

  • Texti:

bls. 1
Einsog hinum háu stiptsyfirvöldum er kunnugt
hefi eg nú í 10 ár staðið fyrir hinu íslenzka forngripa-
safni og safnað þeim 1152 Nr., sem þar eru saman
komin; til að vekja áhuga manna á safninu hefi eg
jafnaðarlega sýnt það tvisvar í viku í vetur og sumar
og hin síðustu ár einatt daglega eða jafnvel opt á
dag um miðbik sumarsins, og þessutan *eru allar*(y) *hefi eg haft miklar*(i)
brjefaskriptir *mínar*(y) í þarfir safnsins bæði innan
lands og utan. Fyrir alla þessa fyrirhöfn mína í
þarfir safnsins hefi eg aðeins fengið 100 rd., er
mjer voru borgaðir 3. Júlí 1870, en þau rúm 3 ár, sem
síðan eru liðin, hefur *og*(y) umsjónin yfir safninu verið
fyrirhafnarmest, eigi aðeins sakir þess, hvað safnið
hefur stækkað, heldur einkum vegna þess, að eg varð
að verja öllu vorinu 1871 og *og*(y) mestum hluta sum-
arsins sama ár, til að raða öllu safninu, semja
nýtt registur yfir það og *hafa umsjón*(y) sjá um
smíðar á herbergjum og skápum handa því; enn-
fremur tók það töluverðan tíma að koma fyrir *þeim*(y)
steinvopnum þeim, er safnið fjekk næstliðið
sumar. Með tilliti til þessarar sjerstakleg*la*(y) fyrir-
hafnar leyfi eg mjer að fara þess á leit, að stiptsyfir


bls. 2
völdin vildu veita mjer 100 rd. af peningum þeim,
sem safninu hafa verið ætlaðir yfirstandandi
ár, *og sem það eigi hefur þurft á að halda í þetta
sinn til annars brýnni nauðsynja*(y)

*ATH hér eru einnig rituð minnisatriði ýmisleg...



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: