Bréf (SG02-24)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: Forngripasafnið, Danir
  • Efni: “Viðhorf til Dana. Forngripasafnið og skýrslan um það. Möguleikar á að Sigurður fari að skrifa í Aarboger nordisk oldlyndighed. Frétt um bátstapa þar eystra.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Jósef Jónsson, Benedikt Eiríksson, Stefán alþingismaður?

Texti:

bls. 1

Djúpavog 17. ág. 1871


Sigurður minn silkisn...


Pappírinn er skorpinn og skitinn.

Ertu það ekki líka Þakka eg þer sending-

una austan vérans. Men bölvaðr ertu

veslings danskinn. Bænirnar þínar eru

sjálfsagt betr meintar enn mínar og

það er nú bótin. Við skulum blessa

danskinn og bölva honum á víxl. Annað

hvort hrífr.

Segðu mer nú mart og mikið í fretum

af forngripasafninu, og dreptu á 1 eða

tvennt eða þrennt það merkasta, sem

því hefir áskotnast síðan eg vissi til.

Mikið er eg gramur bókmenntafélaginu, að það

skuli eigi halda áfram skyrslu útgáfunni.

Hvernig lízt þér á að fara að skrifa eitthvað

um íslenzkar fornmenjar í "årbögerner for

nordisk oldkyndighed". Eg skyldi búa til

einhvern texta eftir prentuðu skýrslunni og svo

upplýsingunni frá þér um það merkasta sem

óuppauglzt er, ef eg fengi þær, en svo yrðir

þú að gjöra teikningar af því helzta, sem

gjört yrði að umtals efni. Gæti það

ekki verið specúlatión Sjálfsagt þyrft-

um við, ef vel væri, að finnast og conferera

codices, áðr enn endahnútrinn yrði rekinn á;

Þetta er að eins lauslega framköstuð

upp á stunga. Segðu eitthvað um

hana. - Allt af er mér meinslaust

til forngripasafnsins, þótt ekki sjái á.


bls. 2



Hornafjarðarmáninn skyggir hér á allar

fornmenjar, svo þær finnast ekki, þó

að með ljósi sé leitað.

Af því þú ert seinastr af þeim

sem eg í þetta sinn rata til Reykjavíkr,

get eg þeirrar fréttar, ef þú vildir segja

hana einhverjum fréttþyrstum, t.a.m. Þjóðólfi,

að í gær í kyrru veðri í Búlandsnesi 2 menn,

af lítilli byttu, sem ætluðu örskamman veg á

skeljafjöru, þeir að nafni Jósef Jónsson, 25 ára vinnumaður þar, og

Benedikt Eiríksson, piltr á 9. ári (bróðurson Stefáns

alþingismanns), efnilegr og góðr drengr.

Eg vil eigi vera að mig lengr við að

skrifa né þig við að lesa


Lifðu heill. -


(Eggert Ólafsson Briem?)

*ATH Nafn í sviga er skrifað með hendi starfsmanns Þjóðminjasafns


  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar