Bréf (SG02-24)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 01:07 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 01:07 eftir Olga (spjall | framlög) (Created page with "* '''Handrit''': SG 02:24 Bréf frá Eggerti Ó. Briem * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 17. ágúst 1871 * '''Bréfritari''': Eggert Ó. Briem * '''Staðset...")
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Jósef Jónsson, Benedikt Eiríksson, Stefán alþingismaður?

  • Texti:

Bls. 1

     	
Djúpavog 17. ág. 1871


Sigurður minn silkisn...

Pappírinn er skorpinn og skitinn.
Ertu það ekki líka Þakka eg þer sending-
una austan vérans. Men bölvaðr ertu
veslings danskinn. Bænirnar þínar eru
sjálfsagt betr meintar enn mínar og
það er nú bótin. Við skulum blessa
danskinn og bölva honum á víxl. Annað
hvort hrífr.
Segðu mer nú mart og mikið í fretum
af forngripasafninu, og dreptu á 1 eða
tvennt eða þrennt það merkasta, sem
því hefir áskotnast síðan eg vissi til.
Mikið er eg gramur bókmenntafélaginu, að það
skuli eigi halda áfram skyrslu útgáfunni.
Hvernig lízt þér á að fara að skrifa eitthvað
um íslenzkar fornmenjar í "*a*(danskt á)rbögerner for
nordisk oldkyndighed". Eg skyldi búa til
einhvern texta eftir prentuðu skýrslunni og svo
upplýsingunni frá þér um það merkasta sem
óuppauglzt er, ef eg fengi þær, en svo yrðir
þú að gjöra teikningar af því helzta, sem
gjört yrði að umtals efni. Gæti það
ekki verið speúlatión? Sjálfsagt þyrft-
um við, ef vel væri, að finnast og conforera
codices?*, áðr enn endahnútrinn yrði rekinn á;
Þetta er að eins lauslega framköstuð
upp á stunga. Segðu eitthvað um
hana. - Allt af er mér meinslaust
til forngripasafnsins, þótt ekki sjái á.


Bls. 2

           	
Hornafjarðarmáninn skyggir hér á allar


fornmenjar, svo þær finnast ekki, þó
að með ljósi sé leitað.
Af því þú ert seinastr af þeim
sem eg í þetta sinn rata til Reykjavíkr,
get eg þeirrar fréttar, ef þú vildir segja
hana einhverjum fréttþyrstum, t.a.m. Þjóðólfi,
að í gær í kyrru veðri í Búlandsnesi 2 menn,
af lítilli byttu, sem ætluðu örskamman veg á
skeljafjöru, þeir að nafni Jósef Jónsson, 25 ára vinnumaður þar, og
Benedikt Eiríksson, piltr á 9. ári (bróðurson Stefáns
alþingismanns), efnilegr og góðr drengr.
Eg vil eigi vera að mig lengr við að
skrifa né þig við að lesa

Lifðu heill. -

(Eggert Ólafsson Briem?)
*ATH skrifað með hendi starfsmanns Þjóðminjasafns



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: