Bréf (SG02-25)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 01:08 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 01:08 eftir Olga (spjall | framlög) (Created page with "* '''Handrit''': SG 02:25 Bréf frá Eggerti Ó. Briem * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 2. okt. 1872 * '''Bréfritari''': Eggert Ó. Briem * '''Staðsetning...")
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

  • Texti:

Bls. 1

           	
Höskuldsstöðum, 2. okt. 1872


Elskulegi vin!

Það er farið að fyrnast um bréf okkur
á meðal, og eins er farið að verða langt síðan,
að eg hefi frétt nokkuð af forngripasafninu.
Mér þætti mjög vænt um, ef þú vildir einhvern
tíma skrifa mér eitthvað frá því, hvernig
því líðr, hversu það eykst og eflist. Ekki hefir
bókmenntafélagið enzt vel með að gefa út
skýrslurnar. Er ekki áhugi manna fyrir því farinn að
dofna, síðan hætt var, að auglýsa gefendr?
Mér finnst það svo sem vitaskuld, því að
margir munu hafa gefið því af nokkurs
konar *fordild/fordikt*? til þess að láta það auglýsast,
og aðrir ef til vill af forvitni, ef þeir hafa ekki
þekkt til hlítar muninn né vitað, hvað á þeim,
stoð, og viljað fá upplýsing um það. Hvernig
lízt þér á, ef eg færi að semja á dönsku
og setja í "*A*(danskt á)rböger for nordisk oldkyndighed",
ef það gengi út, einhvern útdrátt eða
?* "omarbeidelse" af prentuðu skýrsl-
unni? Það ætti, ef það væri laglega af hendi
leyst, ekki að spilla fyrir safninu. Fyrir
utan það, að eg er ekki alls kostar fær
til þess, þá sýnist mér einkum tvennt að,
nefnilega að skýrslan nær yfir svo skammt,
og myndir eða uppdrætti vantar. Einnig


Bls.2
kannt þú að hafa uppgötvað einhverja
þá galla á skýrslunni, sem gjöri það iðr
ráðlegt, að leggja hana eins og hún er
til grundvallar. Mér þætti vænt um, ef
þú vildir skrifa mér þitt álit í þessu
efni við tækifæri. Eg var byrjaðr á slíkum
útdrætti í fyrra, en af því að eg hvorki
tók með mér skýrsluna né önnur tæki, þá
get eg ekki haldið því áfram að sinni,
en kynni þó að geta búið mig betr undir það
með því að kynna mér betr þau rit fornfræðafélags-
ins og þær sögur vorar, sem eg hefi við
hendina.
Getr þú ekki um 2 rúnasteina á Hösk-
uldsstöðum í þjóðsögunum eða einhvers staðar?
Eg fæ ekki uppspurt, nema 1, sem liggr að miklu
leiti á kafi í kirkjugarðinum. Þér er víst
kunnugt um líkneskið hér í kirkjunni (María
í heimsókn hjá Elísabet?). Það er orðið henni
fráskila, og væri víst safninu vel komið,
ef hægt væri að koma því. Eitthvað á
kona mín af gömlu rusli (trafakefli, kistil,
reiðgjarðarhringjur, 2 gamla peninga, kron-
mark af beini, beltisspenna o.fl.), en það er
ekki laust sem skrattinn heldr, og kvennfólkið
er oft fastheldið líka.

Nóg að sinni. Vale

Eggert Ólafsson Briem



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: