Bréf (SG02-26)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 22. nóvember 2013 kl. 15:40 eftir Eoa2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. nóvember 2013 kl. 15:40 eftir Eoa2 (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Jón Sigurðsson, Elísabet,

Texti:

Bls. 1
Höskuldsstöðum, 21. apr. 1873

Salve domine!

Bréfi hef eg að svara, dags. 4. des. f.á.
Kærkomnar eru mér allar fréttir af forngripa-
safninu. Það er þó orðið talsvert, og er eigi
hætt við, að það aukist ekki, ef það nýtr
framvegis góðrar forstöðu. Eg hlakka til
að fá annað heptið af skýrslunni.
Þann útdrátt af skýrslu þinni, sem
eg gat um í fyrra bréfi, hugsaði eg mér svo,
að flokka hlutunum niðr í vissa kafla, og minnast
hinna helztu, er til hvers kafla heyrði, og lýsa
að eins nákvæmlega hinum allra merkustu. Þetta
hefði mér nokkuð kunnað að takast, hefði
eg einskorðað mig við heftið, sem út er komið,
en það verðr allt erfiðara, ef eg tek safnið
fyrir eftir því ókomna hefti með, er eg þekki lítið
eða ekkert til hlutanna, enda mundi það
verða talsvert mál, og oflöng ritgjörð í
"Årbögerne", því þar hugsaði eg að koma
því að. Önnur aðferð væri nú, ef eg eigi
sleppi því alveg, að taka að eins einstaka
kafla, t.a.m. um (Baldrsheims)taflið, um vopn
eða um einstaka tegund vopna, t.a.m. spjót,
um foldardálka (eða eitthvað, er markt-
verðast kynni að þykja).


*ATH á spássíu hefur Eggert skrifað: því eg man eftir mörgum hlutunum


Bls. 2


Eg yrði náttúrulega að eiga á hættu,
hvort mér F tækist að gjöra það svo úr
garði, að það þætti meðtækilegt í "Årbögerne"
Það er heitið 20rd fyrir örkina, ef það á
annað borð, er tekið upp í þær, en hvort
borgað yrði "honorar" að auki fyrir myndir
ef þær fylgdu, veit eg ekki.
Eitthvað dregr Jón Sigurðsson líkleg
inn með sér, ef hann verðr "rektor" og endist
nokkur ár við það. Það kynni þá að koma
annað líf í Bókmenntafélagið í Reykjavík.
Eg nenni eigi að fara að politísera
núna. Eg ætla að lofa öðrum að hafa
fyrir því. - Líklega verða eigi ferðir
hér á milli og Reykjavíkr í sumar, svo að
hægt verði að koma Elísabetu til þín.
Nú húki hún mygluð upp á maura-
loftinu núna, því að undir stólunum á
kirkjunni þótti mér henni ekki vært.

Vertu nú sæll

Eggert Ólafsson Briem.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="nb" />

Tilvísanir

<references />

Hlekkir