Munur á milli breytinga „Bréf (SG02-93)“

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
(Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:93 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': XXX * '''Bréfritari''': Ólafur Sigurðarson * '''St...)
 
Lína 1: Lína 1:
 
* '''Handrit''': SG 02:93 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
 
* '''Handrit''': SG 02:93 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
 
* '''Safn''': Þjóðminjasafn
 
* '''Safn''': Þjóðminjasafn
* '''Dagsetning''': XXX
+
* '''Dagsetning''': 7. feb. 1858
 
* '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarson]]
 
* '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarson]]
 
* '''Staðsetning höfundar''': [[Ási]]
 
* '''Staðsetning höfundar''': [[Ási]]

Útgáfa síðunnar 15. júlí 2011 kl. 01:59

  • Handrit: SG 02:93 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 7. feb. 1858
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

  • Texti:



bls. 1 Ási 7.dag Februar m. 1858
Elskulegi frændi minn!
Nú ætla jeg að fara að reina í þér rifin, og
vita hvað gott skilatraust þú hefur þarna í Höfn;
mig lángar til að eignast ýmislegt þaðan, enn gét
nú ekki sendt þér peninga til að kaupa fyrir handa
mér, fyrri um að sumri, trúi þér þó betur enn
sumum öðrum, að sjá um að það sé ósvikið. -
Það sem mér liggur nú mest á er litunarketill,
sem þú verður nú endilega að hjálpa mér með; jeg
vil ekki kosta uppá að hann sé úr eiri, heldur skaltu
útvega mér látúnskétil, sem taki herumbil 1*1/2*(upp) fjórðúng,
þarnæst bið jeg þig að útvega mér glas sem brúkað er til að
sjúga með brjóst, það er með gati á annarri hliðinni
líka lángar mig til að fá þvagpípu sem brúkuð er í
kviðarsjúkdómum, mun þetta hvorttveggja vera apotheka
vara. Ennþá ætla jeg að biðja þig um hársmirsli, þó
mér dugaði *ekki*(i) Morvilles pomade, jeg hef betri trú á þessum
nýa af grösum alveg tilbúna, sem kallast Vegetabilsk
Stang Pomade, og fæst í seinasta blaði sem jeg hefi séð, hjá
Adolph Hense Vimmelskaptel No 134 A Dálitlan sterkan
hérum 4 þumlúngar í þvermál, enn það er ekki nema
tómar skálarnar sem jeg vil, því jeg á ballansinn og lóðin.
Eitthvað af þessu kantu að géta gjört fyrir mig, og
í það minsta vona jeg eptir línu frá þér með
----
bls. 2
vorskipum, með dálitlum fréttum.
Héðan er fátt að frétta, nema vesta útlit með
fjárkláðann, hann er nú komin vestantil í Húna-
vatnssýsluna, og kémur nú líklega til okkar í sumar
hvernig sem reint er að verjast honum, og kallast þá
heldur fljótt velgeingni fólks hér í sveitunum, því leifar
eptir góða árferðið og verzlunina eru kaupstaðaskuldir hjá
öllum fjöldanum, og það eru ekki góðar leifar.
Þinn einl. frændi
Ól. Sigurð*ar*(i)sson



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: