Bréf (SG02-98)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:02 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:02 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:98 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 25. jan. 1861 * '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarson...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:98 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 25. jan. 1861
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

  • Texti:

bls. 1
Ási 25 dag Janúar 1861
Kæri frændi!
Kona mín biður nú einusinni mikið vel að
heilsa þér, með þakklæti fyrir möttulsniðin og
uppdrættina sem þú sendir henni núna seinast með
Böðvari í Ketu, og ert þú nú búinn að gjöra hana
handverksfæra að uppdráttum og sniðum, hefði hún
eptir því verið menntuð í handirðum á ýngri árum.
Eptir tilmælum þínum sendir hún þér einn bug af
fatsaumnum, og er hann hvorki verr né betur gjörður en
á hennar fati; gjörir hún ráð fyrir þeim blómstur-
saum nunnunum í R.vík þyki heldur gisinn hjá
sér saumurinn, en hún gjörði það af þeirri ástæðu
að klæðið hrukkaði ekki undan honum, því henni
þykir það ljótt; enda gjörði það það(sic) ekki hjá henni.
Nú er hún farin að byrja að sauma í möttulinn
með sama saum, og svipaðri litarhögun, og þykir
öllum það fremur fagurt eins og enda fatsaumurinn;
baldirað blað bað hún þig um í sumar, og stjörnukoffr
eða þó heldur hitt eins og það sem þú sendir henni, því
*það*(i) mun víst vera fegra, og er líka svo samkynja upp-
dráttunum, en beltinu *pörunum*(i) leiðist henni mest eptir, því
hún þarf að fá það að láni. Verði nú kona mín
lengi einstök í þessum búning hér í Norðuramtinn, er
það meir fátækt og kunnáttuleisi til þessa saumaskapar
að kenna, heldur en því, *að*(i) sumt kvenfólk sé nú ekki
farið að mörgu leyti að fallast á hann, þú mátt líka


bls. 2
geta því nærri þegar eg er nú farinn að halda með
honum af alefli, því eg hefi þó stundum fundið
eitthvað að hjá þér.
Héðan er fátt merkilegt að skrifa, besta tíð hefur
verið hér í vetur það sem af er, þess var líka þörf
eptir grasleysis- og óþurka sumar.
Þinn einl. frændi
Ó. Sigurðsson


bls. 3
AUÐ SÍÐ


bls. 4
S.T.?*
Herra Málari Sigurður Guðmundsson
í/Reykjavík

*ATH Ól hefur skrifað til hliðar:
Fylgja innsigluð blöð




  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: