Bréf (SG02-99)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 29. nóvember 2013 kl. 22:05 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. nóvember 2013 kl. 22:05 eftir Olga (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search


  • Texti:

bls. 1
Ási 6. Janúar 1861
Kæri frændi!
Bréf þitt af 26 Marts f.á. þakka eg
nú þó seint sé. Þú lætur mig merkja
að þér líki allvel saumaskapur konu
minnar á bugnum sem hún sendi þér,
en litarhögun var ekki hægt að koma
vel fyrir á þeim uppdrætti, og vildi
hún fá hendfagri uppdrátt í því efni
en hann er; baldírað blað vildi hún
líka fá hjá þér í fyrra að gamni
sínu. Nú er hún búin með möttulinn
og beltið, og má því til á hverri hátíð
að nota gömul og hálfljót sylfurpör
vegna þess þú stendur þig svo ílla
með pörin nýju, sem ega þó að full-
komna stázið; uppí þau mun jeg hafa
sendt þér 10rdl með Gísla Brinjólfss.
í hitt hið fyrra, og aptur í fyrra 20rdl
með Böðvari í Ketu; þó skalt þú ekki
hugsa að þessir 30rdl ættu að skapa
verð þeirra heldur þú og smiðurinn.
koffur bað jeg þig líka um í fyrra, því
nú er kona mín að byrja að búa aðra








bls. 2
og þriðja og fjórða eru nú farnar að út-
vega sér vír og sefyrgarn. Jeg hef
þá ekki meira að skrifa þér í þetta
sinn, því jeg vona þú sýnir nú ein-
hverja rögg af þér fyrir páskana.
Þinn einl. frændi
Ó. Sigurðsson









  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:sarpur.is

  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: