Bréf (SG02-176)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 11. september 2015 kl. 11:12 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. september 2015 kl. 11:12 eftir Olga (spjall | framlög) (1 bréf (SG-02-176) færð á Bréf (SG02-176))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: Kvenbúningur, uppdráttur
  • Efni: „Beiðni um uppdrátt og upplýsingar um gerð kvenbúningsins.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Sigurlaugar í Ási

Texti:

bls. 1

Reynistað 20. october 1860



Elskulegi vin!



Núna mun þér líka bréfs-

efnið, því það miðar einmitt

í þá áttina , sem þú ert að

berjast fyrir, það er nefnil.

hér stulkur í firðinum eins

og annarsstaðar samt! sum-

ar af þeim eru laglegar

sumar rétt þokkalegar og

mjög fáar fríðar sýnum,

ein af þessum síðastnefndu,

sem að öðru leyti er greind

líka, sem og er það þó sjald



Verte


bls. 2


gjæft að það sé samfara - sá bún-

ing Sigurlaugar í Ási, henni leyst

mjög vel á hann og beiddi mig

að útvega hjá þér uppdrátt, til

að sauma eptir neðan á fót,

og láta fylgja með fyrirsögn

um það, hvernig skipta eigi

litunum, þetta verður þú að

gjöra blessaður með pósti

til baka, því eg lofaði þer

henni því, þú getur huggað

þig við það fyrir fyrirhöfn

þína að ef þessi stulka fær bún-

inginn, þá fara hinar til, því

hún er sú fallegasta hér í

firðinum og bezt að sér.

Engin eru heðan nýmæli

nema giptingar og Væsen


bls. 3


sem þig interessar ekki grand.


Fyrirgefðu flytirinn og

lifðu vel

þinn vin

St. Einarsson

bls. 4 / forsíða


  • ATH skrifað lóðrétt á miðja síðu


S.T.


Herra málari S. Guðmundsson


Reykjavík


  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar