Munur á milli breytinga „Konurnar“

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Lína 24: Lína 24:
 
</ref>
 
</ref>
 
*[http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2054432 '''Hólmfríður Þorvaldsdóttir'''] húsfreyja, Reykjavík (f. 29. sept. 1812, d. 25. nóv. 1876) Eiginkona Jóns ritstjóra
 
*[http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2054432 '''Hólmfríður Þorvaldsdóttir'''] húsfreyja, Reykjavík (f. 29. sept. 1812, d. 25. nóv. 1876) Eiginkona Jóns ritstjóra
* [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2290948 '''Kristín Jónsdóttir''' ''síðar Krabbe''] (f.1840? - d.1910) Dóttir Jóns og Hólmfríðar.  
+
* [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2290948 '''Kristín Jónsdóttir''' ''síðar Krabbe''] (f.1840? - d.1910) Dóttir Jóns og Hólmfríðar. [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2290948 Minningarorð: "Kristín Krabbe" ''Óðinn'' 6. árg. Mars 1911, bls. 89]
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2290948 Minningarorð: "Kristín Krabbe" ''Óðinn'' 6. árg. Mars 1911, bls. 89]
 
 
* '''Hólmfríður Björnsdóttir''' ''síðar Rósenkranz'' (f.1842? - d.1922) Frænka Hólmfríðar
 
* '''Hólmfríður Björnsdóttir''' ''síðar Rósenkranz'' (f.1842? - d.1922) Frænka Hólmfríðar
 
* '''Guðrún Borgfjörð''' (1856-1930) var sem ung stúlka oft á heimili  Jóns ritstjóra. Að beiðni Hólmfríðar, konu Jóns, studdi hún Sigurð að sjúkrahúsinu , að banalegu sinni í September 1874, þegar hann gat varla gengið vegna mæði.<ref group="sk">
 
* '''Guðrún Borgfjörð''' (1856-1930) var sem ung stúlka oft á heimili  Jóns ritstjóra. Að beiðni Hólmfríðar, konu Jóns, studdi hún Sigurð að sjúkrahúsinu , að banalegu sinni í September 1874, þegar hann gat varla gengið vegna mæði.<ref group="sk">

Útgáfa síðunnar 27. maí 2013 kl. 23:00

Soffía Einarsdóttir, prófastsfrú frá Stykkishólmi.

Konurnar koma í ljós...

Eins og víðar, fyrr og síðar, eru konur í bakgrunni og jaðri þessarar sögu þó framlög þeirra séu mörg, merkileg, og merkjanleg. Það þarf ekki að líta lengi yfir völlinn til að greina þær í myrkrinu sem leggst yfir fólk sem ljós sögunnar fær ekki að skína á. Áhrif þeirra á framkvæmdir Sigurðar málara og í kringum Kvöldfélagið eru reyndar mun ljósari en víða annars staðar. Fyrsta skrefið í að draga þær fram í sviðsljósið er að bera kennsl á þær og nefna. Þessi síða þjónar þeim tilgangi að draga þær fram svo unnt sé að setja framlag þeirra, áhrif og sköpunarkraft í sviðsljósið. Uppröðuninn á þessari síðu mun breytast eftir því sem fleiri nöfn og tengsl birtast. Byrjað verður á að einkenna konurnar í lífi Sigurðar eftir því hvar og hvenær þær koma fyrst við sögu, svo tenglsanetið komi sem best í ljós. Ef vel lætur, mun fjöldi þeirra krefjast betri skilgreininga með tímanum. (~KA, janúar 2012)

Skagafjörður 1833-1849

Kaupmannahöfn 1849-1858

Elisabeth Jerichau Baumann (1819-1861)

Ísland 1856

Sigurlaug Gunnarsdóttir (f. 29. mars 1828, d. 20. júlí 1905.) Eiginkona Ólafs Sigurðssonar í Ási (g. 1854,) frænda Sigurðar Guðmundssonar.
Sigurlaug var að öllum líkindum fyrsta konan sem saumaði og bar faldbúning (eða útgáfu af honum) eftir hugmyndum Sigurðar. Hún kom í honum í brúðkaup þann 18. júní 1860. Í heimsókn Sigurðar til Íslands 1856, ræddu þau mikið um búninginn þegar hann dvaldi að Ási: "Hann dvaldi þar í 2 daga og talaði margt við hana um íslenska kvenbúninginn, sem hann var þá farinn að hugsa um að endurbæta." (Kvennablaðið, 8 árg. 1 tbl. 28. Jan. 1902, bls. 2)

Ísland 1858-1874 í Reykjavík

"Konur í húsi Jóns Guðmundssonar ritstjóra:" <ref group="sk"> Sjá: Elsa E. Guðjónsson "Aðfaraorð (2006)." Í Um Íslenskan Faldbúning, eftir Sigurð Guðmundsson, ritstj. Þjóðbúningastofan og Guðrún Gísladóttir, 7-16. Reykjavík: Þjóðbúningastofan, 2006 (1878) </ref>

Guðrún Borgfjörð (Agnar Kl. Jónsson útg.). 1947 Minningar. Reykjavík Hlaðbúð. bls 83. </ref>

"Nemendur Sigurðar:" Sigurður kenndi ungum stúlkum í Reykjavík teikningu.

Saumaði fyrsta fánann með fálka-merki Sigurðar.


---

Ísland 1858-1874 utan Reykjavíkur

Konur á myndum eftir Sigurð

Tenglar vísa allir á lýsingar í: Halldór J. Jónsson. "Mannamyndir Sigurðar málara" Árbók Hins íslenska Fornleifafélags 74. árg. 1977, bls 7-62.

Konur tengdar og skyldar Kvöldfélagsmönnum

  • Hólmfríður Þorvaldsdóttir húsfreyja, Reykjavík (f. 29. sept. 1812, d. 25. nóv. 1876) var móðir Þorvalds Jónssonar (síðar læknir.) Hann var fyrsti varaforseti Kvöldfélagsins. (Eiginmaður Hólmfríðar, Jón Guðmundsson ritstjóri var ekki meðlimur í Kvöldfélaginu.)
  • Sigríður Einarsdóttir Magnússon (1831-1915): Eiginkona Eiríks Magnússonar, bókavarðar í Cambridge. Eiríkur var stofnfélagi Kvöldfélagsins og fyrsti ritari.

Sigríður rak kvennaskóla í Vinaminni (Mjóstræti 3,) í Grjótaþorpi Reykjavíkur, veturinn 1891 til 1892.

Ljósmynd af Sigríði frá 1900-1915

  • Soffía Einarsdóttir (Sæmundsen), prófastsfrú frá Stykkishólmi: Systir Sigríðar Einarsdóttur Magnússon konu Eiríks Magnússonar, bókavarðar í Cambridge. Eiríkur var stofnfélagi Kvöldfélagsins og fyrsti ritari. Við hjónavígslu Soffíu og Sigurðar Gunnarssonar cand. theol. í Dómkirkjunni í Reykajvík í september 1873 var fjöldi kvenna á skautbúningi Sigurðar, en Soffía var hins vegar á hvítum kjól að hætti meginlandsins.

Konur utan Íslands og Danmerkur

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />