Ritgerð (SG-05-5) Ritgerðir um kvenbúninginn

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 29. júní 2012 kl. 09:58 eftir Edda (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2012 kl. 09:58 eftir Edda (spjall | framlög) (→‎bls. 14 (b))
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: Faldur, þjóðbúningar, tíska,
  • Efni: Hér færir Siguður Guðmundsson rök fyrir því af hverju ekki beri að lasta faldinn og ústkýrir muninn á nýja faldinum sem hann leggur til og þeim gamla. Sá nýji er ekki reirður heldur tilbúinn til brúks.
  • Nöfn tilgreind: Guðmundur Bergþórsson, Mörður Valgarðsson, Muhamed, Ganymedes, [Antonio] Canova, Albert Thorvaldsen, Eggert Ólafsson, Sigurður Guðmundsson.

Ritgerðir um kvenbúninginn

  • Texti:

[aukablað] Ritgerðin Faldurinn, ekki með hendi Sigurðar, en athugasemdir og við aukar og undirskrift með hendi hans. <ref>[Þetta er athugasemd frá starfsmanni Þjóðminjasafnsins. Ritgerðin hefur verið lögð í þetta blað.]</ref>

bls. 1

Faldurinn:: 1



Vér álítum, að faldurinn sé skáldlega og sögu-
lega rótgróinn landinu (1). Vér teljum það góðan sið en ekki ó-
sið, að konur beri fald; og oss eru enn til þessa dags
ókunnar allar þær ástæður, er geti hvatt konur til að
brjála<ref>[ath! skrift]</ref> þessum forna vana ættmæðra þeirra, og oss˜ eru
og ókunnir þeir gallar á faldinum, er getið verið orsök
til, að þær leggi hann niður, eptir að hann hefir unnið
yfir 1000 ára hefð hér á landi. Vér viljum því leyfa oss
að fara um þetta efni nokkrum orðum.
Þótt ver séum vissir um, að faldurinn(eptir
öllum viðurkenndum)
eins og hann hefir verið um stund, sé eptir öllum
viðurkenndum fegurðarreglum engaveginn ljótari, eður
smekklausari, enn annað flest í búníngnum, eins og
það hefir verið um stundhríð, þá hafa það ei að síður verið
forlög faldsins, að menn hafa eð ósekju níðst á
honum, og lastað hann hver um annand þveran,
___________________________________________________________
2 sjá þjóðólf 13. árg. <ref>Þjóðólfr 13. árg. Jón Guðmundsson útgefandi og ábyrgðarmaður. 1860-61.</ref>

bls. 2v

2:::


af því, að menn hafa heyrt aðra lasta hann. Þessi
rekistefna hefir nú gengið hálfa aðra öld, eða meir,
frá því, að Guðmundur Bergþórs˜son orti skautaljóð.
Menn misskildu faldinnGuðmund þá og misskilja hann enn.
og Guðmundur sjálfur misskildi málið, því hann er
að hæðast að krókfaldinum, en villlátakonur hafa
beina faldinn, er hann heldur að sé elztur af því,
hann tíðkaðist mest fyrir vestan þá, er hann var
úngur, en þó vita menn, að konur báru krókfald
um lok 17. aldar, um hans daga og eins löngu
fyr, alt frá10-14. aldar.því Ísland bygðist. En Guðmundur hefir af þekk-
ingarleysi álitið krókfaldinn úngan af því, að
um hans daga fóru krókfaldar að aukast meir, en
áður hafði verið nokkra sinnihríð; varð hann þá (<image>innsetningarmerki merkist hér eftir sem: ∫</image>-)[1]
jafnframt hærri en áður hafði verið líkt, og sanna
það bezt gamlar myndir. Menn feta heldur ekki
í fótspor Guðmundar með því, að lasta faldinn,
því hann lastaði ekki faldinn yfir höfuð, heldur
ýmislegt afkárasnið á honum, sem þá var og til,

[Ath! eftirfarandi athugasemd var á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1](∫ krókfaldurinn)

bls. 3v

3:::


og hann hefir helzt viljað hafa hann beinan. Þetta
var hans einstrengings háttur. Nú er þetta orðið að
vana, að karlar og konur níða faldinn hvert við ann-
að, eins og aðra óhæfu, en það, sem verst er í þessu,
er það, að vér heyrum aldrei að menn gjöri nokkra
grein fyrir, á hverju menn byggi það, að faldur-
inn sé óþolandi og ljótur, heldur jortrahafa menn
þetta upp hver fyrir öðrum sannanalaust af því,
að þeir heyra, að aðrir hafa þess skoðun.
Vér höfum áður sagt, að faldurinn sé fagur,
og að það sé í alla staði réttast, að íslenzkar
konur beri hann fremur öðrum höfuð búningi,
(sbr. Ný Félagsrit 17. ár). En nú viljum vér ekki álíta
oss of góða, að bæta því við, á hverju vér byggjum
það, að faldurinn sé fagur, og merkur þótt margir þykist
of góðir að koma með ástæðu fyrir því, á hverju
þeir byggi það, að hann sé ljótur. Það kann að
vera, að oss skjátlist í öllu þessu, en enginn getur
burgðið oss um, að vér berum höfuðið undir
hendinni, eður að vér ekki reynum að koma með ástæður og sannanir fyrir gjörðum vorum og skoðunum
og nafngreinum höfundinn, því þá hafa allir

bls. 4v

4:::


að vísu að ganga, þar sem hann er, en þegar
menn dæma sannanaog nafnlaust, þá er hægt að segja
allt, því þá er ekki gjört ráð fyrir, að gjöra grein
fyrir því, er menn tala. vérEg vilþví heldur [1]<image>[∫]</image> segja mein –
ingu mínavora með þeim sönnunum er eg hefi beztar
til, og segja svo með Merði heitnum Valgars-
syni:
“Nefni ek í þat vætti, at ek tek miskviðu alla
or málinu, hvort se mér verðr ofmælt eða van-
mælt, vil ek eiga rétting allra orða minna, unz
ek kem máli mínu til réttra laga”.
Vér byrjum því á því, að mikill þorri manna
ségir að faldurinn sé ljótur og ókvennlegur,
og halda, að hann sé alveg íslenzkur að upp-
runa
og hljóti því að vera skrælingjalegt höfuð-
fat (þetta síðasta mun benda á gott þjóðar-
sjálfstraust?). Faldurinn er eldri en svo, að
vér getum sagt hans fyrsta uppruna. Hann
og túrbaninn austurlenzki eru ef til vill hinir elztu
höfuð búningar í heimi. Hvorn tveggja má rekja
til AssyriuAsíu manna á elztu tímum er vér höfum

[ath! eftirfarandi athugasemd var á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1] <image>[∫]</image>en filgja þeirra dæmi

bls. 5r

5


sögur af. Það er því eigi að óttast, að faldurinn
sé eingöngu íslenzkur, og þess vegna óþekktur
annarstaðar í heiminum, og þvísé hann skrælingjalegur.
Persneskar konur bera hann enn í dag, eður hafa
haft hann fyrir fáum árum, mjög líkan því, er
hann var hér á landi á næst liðinni öld. Hann
er hár, og lítið eitt beygður fram á við að ofan,
og sést hárið niður undan honum.(1) Þannig
hefir faldurinn þar haldizt við fram á vora
daga. Persneskar konur eru álitnar einar
hinar fríðustu og kvennlegustu konur. Trauð-
lega mundu þær hafa þann höfuð búnað, ef hann
væri ljótur og ókvennlegur.
Konur þeirar þjóðar, og er vér og allur hinn
menntaði heimur hefir kyn sitt til að rekja, bera
enn í dag fald á höfði, en sú þjóð er Kákasus=
menn. Sá faldur er optast beinn eða lítið
boginn; líkur því er hann var hér opt á fyrri
öldum. Að aptan fellur höfuðgúkur(=slör) nið-
ur undan honum, niður á herðarnar, líkt
og brúðarlín (sjá Ný Félagsrit, 17. ár). Það er al-

[ath! eftirfarandi athugasemd er skrifuð á hægri spássíu og á við um athugasemd nr (1) í textanum hér að ofan. Númeramerkt í frumskjalinu]:
(2)nóta
á persneskum peníngum
sjást margir persa konungum
mindaðir með með trygiska<ref>[ath! óskýr skrift, gæti líka verið frygiska]</ref>
húfu t.a.m. Artuxerxe
haus húfa er fram beigð líkt
og krókfaldurin, og með koffri<ref>[ath! óskýr skrift]</ref>
um ennið sem er knítt saman
í hnakkanum, með endum
og likkjum.

bls. 6v

6:::


kunnugt, að þessi þjóð, bæði karlar og konur, er á-
litin hin fríðasta í heimi. Bæði Persar og Kákasus
menn hafa Muhameds trú. Það er alkunnugt hvað
sá trúarflokkur vill hafa konur sínar skraut-
búnar, enda hvetur og trú þeirra til þess˜. Trauð-
lega mundu þær konur, sem fríðastar eru allra
kvenna, bera þann höfuð búnað, og hafa borið
hann um svo langan aldur, ef hann væri mjög
ljótur og ókvennlegur [1]<image>[∫]</image>. Nú má geta þess til,
að menn komi með þá mótbáru móti þessu,
þó flestar þessar 2 þjóðir sé skrautgjarnar og
fríðar, þá sé þær nokkuð ómenntaðar. Það
mun” lengi mega segja margt um þess konar,
og viljum vér enn koma með litla vörn móti
því. Konur í Normandí á Frakklandi bera
fald enn í dag áþekkan því, er konur hafa
haft hann á fyrri öldum hér á landi. Hann
varoptast ymist boginn eða beinn á 15. öld
sem frakkneskar myndir sýna, og eins á 11.
öld [2]<image>[∫∫]</image> og optast figldi faldinummeð höfuðdúkur, er féll niður u
undan honum að aptan, eður honum var
kastað yfir hann. Eg vísa mönnum til að sjá

[ath! eftirfarandi athugasemd er skrifuð á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> vér viljum og géta þess að
ímsar þjóðir er búa í grend
við Kákasus hafa enní
dag eins konar falda teg-
undir, eður hafa haft það
fyrir fáum árum t.d. í
Kirgisíu og Kasann konur
beggja þessara þjóða hafa að
reglu lega, beina falda á höfði
(strompa)hér um bil eins og þeir hafa um
margar aldir tíðkast hér á landi,
en þær hafa það fram yfir
okkar kvenn fólk, að þær hafa
haldið þeim gamla höfuðdúkog
dúk og fellur hann niður
undan faldin um að
aptan og sveipa þær honum
samann um hálsín, eður
firir andlitið ef þær vilja
hilja það. í Armeníu hafa
konur haldið höfuð dúknum
en faldin munu þær hafa
niður lagt.
[2]<image>[∫∫]</image> ermindirnar á Bayex
tjaldinu benda á, er saumað
er 1066-70.

bls. 7r

7:::


Nýa Sumargjöf 1860.<ref>[1]</ref> Þar sjást myndaðar 2
tegundir af þeim faldi eins og hann er nú. Ef
ekkert hefði verið fagurt né merkilegt við þenna
höfuð búning, þá mundu konur í Normandi varla
hafa borið hann um svo langan aldur, þær sém
eru svo nærri sjálfri Parisarborg, og hafa svo
góða hentugleika á, að taka upp ný breytni
París˜ar. Þessar konur eru og álitnar fríðastar
af frakkneskum konum. Tæplega munu menn geta
komið hér með þá mótbáru að Frakkar sé
smekklausir eður ósiðaðir; enog þótt einhverjum
landa kynni að þóknast að segja þá ósiðaða
og smekklausa, mundu þeir einungis hlæja að því [∫]. Það
er öllum kunnugt, að allur hinn menntaði heim-
ur er samdóma í því að Forngrikkir hafi í í-
þróttum og allri fegurðar tilfinning verið komnir
lengst af öllum þjóðum, og að þeir, sem bezt eru
að sér í íþróttum og myndasmíð og allri fegurð, á á vorum tímum
sé ekki komnir lengra með tærnar en þangað,
sem þeir höfðu hælana. Það er alkunnugt, að
Grikkir tóku upp eptir Persum hina pers-
nesku eða trygisku húfu, sem varð þeirra

bls. 8v

8:::


eitt hið helzta uppá halds hofuð fat, bæði allra
fyrst og eins seinna er fegurðartilfinning þeirra
var kominn í mestan blóma hjá þeim, á 5. öld
fyrir krists fæðing. Þessi húfa var á hæð við
faldinn eins og hann var á fyrri öldum.
Hún var bygð í krók fram á við að ofan er
vafðist optast nær inn undir sig. að ofan
Hinir frægu myndasmiðir Forngrikkja, mynd-
uðu opt þjóðhetjur sínar með þess húfu og
eins [1]<image>[∫]</image> hálfguðina t.a.m. Ganymedes; skjald-
meyjar [2]<image>[∫∫]</image> og kvennfólk mynduðu þeir og með
þessa húfu [3] <image>[∫∫∫]</image>. Það má svo að orði kveða, að
þessir frægu myndasmiðir hafa álitið þenna
höfuðbúnað þann annan eða þridja sinn
fegursta; því auk þessarar húfu sést varla
á myndum þeirra annað höfuðfat en ”dia-
dema”
=skroband<ref>[ath! óskýr skrift]</ref>, eður hjálmar.
Eg á bag Vér eigum bágt með að komast
í skilning um, að þessir frægu feður allrar
íþróttar og fegurðar hefðu valið einmitt þema
höfuð búnað til að setja á mikinn fjölda
af sínum fegurztu myndum, hefði hann verið
ljótur. Það væri er alveg óhugsandi.

[ath! eftirfarandi athugasemd er skrifuð á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> giðjur t.a.m. Artemis og
[2]<image>[∫∫]</image> og skjaldmeyja drottningar
[3] <image>[∫∫∫]</image>. bæði Grískar og Persnenskar

bls. 9r

9:::


Faldurinn hefir hér um bil sama lag og þessi húfa, þar
af leiðirleiðir, að hann er fagur.
Vér viljumverðum að færa oss nær, því margir vilja bregða
oss um, að vér gáumhorfum einungis aptur á bak fram
í hinn liðna tíma. Það gjörum vér ekki. Vér horfum
líka fram á við. En að horfa fram og aptur, er engin
skömmu; því þannig er Janus myndaður eða
forsjónin.<ref>[Sigurður vitnar einnig í Janus í SG:05:16 Um nauðsyn þess að horfa til fortíðarinnar um leið og áfram er haldið]</ref> Ekki þurfum vér að horfa lángt aptur
í tímann til þess, að þekkja 2 myndasmiði,
Albert Thorvaldsén og Canova.<ref>[ath! er það Antoni Canova: http://en.wikipedia.org/wiki/Antonio_Canova]</ref> Á sumum
hinum fegurstu myndum þeirra er phrggiska<ref>[ath! óskýr skrift]</ref>
húfan og hneykslast enginn á því, og varla
mundu þeir hafa sett hana á sínar myndir,
ef hún hefði verið ljót; því híngað til hefir þeim
ekki verið brugðið um smekkleysi. (Hvað náð-
ugum löndum vorum þóknast að vera við þá,
skulum vér láta ósagt).
Frá þessari húfu má telja 2 merki-
legar ættar tölur. Fyrst nær2 því1 alla hjálma, síðan
alla hina fyr greindu falda (hinn persneska, Káka-
eiska, norræna = íslenzka indverska og normandíska fald og fleiri.
En á hinn veginn er gríski hjálmurinn, rómverski
hjálmurinn, angelsaxneski hjálmurinn, er Ís-

bls. 10v

10:::


lendingar báru opt í fornöld, og seinast hinn
almenni riddara hjálmur norður hálfubúa, er
nú tíðkast almennt erlendis. Menn skulu því
ekki f undrast yfir því, þótt faldurinn líkist
nokkuð hjálmi, fyrst að faldar og hjálmar
hafa hvorir tveggja einn uppruna. Allar
húfur hljóta og meir eða minna að líkjast
einhverjum hjálm. En það geta menn þó ekki
talið neinn galla á þeim.

bls. 10 (b1)


[aukablað merkt bl 10 II II og á að koma hér inn í textann þ.e. á undan: „II Margir vilja svívirða faldinn með því, að kalla hann hrúts horn” hér að neðan.]
bl 10
II II Vér verðum og að géta þess aðí litlu Asíu bera
konur enn í dag eður hafa fírir skömu borið
beina falda á höfði sér, t.d. í Smyrna<ref>[2]</ref> en
hér er faldurin og höfuð dúkurin í einu lægi,
og fellur höfuð dúkurin niður á herðarnar að aptan,
í Tipel Tibet sést líkur faldur á afguða-
mindum. en ekki hofum vér eg orðið var við han á
kvennfólki. nú er um vér bún ir að rekja faldin
þessa krókóttu leið frá Íslandi og alt suður að Indlandi,
en áður en vér skiljumst við þettað efni þikir oss
skilt að géta þess eins sem er ef til vill það
merkasta atriði í þessu máli og það er: að hinar
alkunnu dans meyar(1) er gæta hofanna hjá Hindúunum
í Indlandi, bera en krókfald á höfði; þeirra
krókfaldur er nær því alveg eins og han hefir tíðkast
hér á landi á öllum firri öldum, höfuð dúkin hafa
þær sam fastan við faldin, og fellur han niður
frá faldinum að aptan niður á herðarnar bæði
faldurin og höfuð dúkurin er kvítur, ogvar á litinn að hinn
forni Íslendski faldur hafi að flestu leiti verið
mjög líkur þess um fald, og að þessi faldur sé lík-
astur þeim Íslendska, af öllum út lendum föld
um, er vér þekkjum, og höfum sögur af.
_________________________________________________
(2) Bajaderen

bls. 10 (b2)


Það er al kunnugt að þessi merka þjóð
hefir að sögn þeirra er þekkja, það elsta
og ágætasta mál er til er þær elstu bækur og
þá elstu skript, og líklega þær elstu
varanlegustu og stór kostlegustu biggingar
er til eru í heiminum [1]<image>[∫]</image> auk þess er þessi
þjóð ein af þeim friðustu þjóðum, og er hún
af sama ætt stofni og vér. vér viljum nú
láta hér við lenda, og hætta að rekja faldin
leíngra, því oss þikir nú nó komið er ver höfum
rakið han til þeirrar elstu þjóðar er vér höfu sögur
af, oss þikir nu talsverð líkindi til, ef ekki
fullkomin sönnun, firir því að faldurin
sé með þeim elstu ef ekki sá elsti höfuð
búníngur er ver aldar sagan þekkir. og ef
það reinist satt, þá á lit eg það sóma en
ekki sköm firir oss að vér höfu haldið
jafn gömlum og ágætum höfuð búnaði,
gégnum svo margar aldir, og svo marga kin þáttu.
oss finst það eíga vel saman að vér sem
höfum verndað og geimt jafn gamalt og ágætt
mál sem vort mál er, og vor forn fræði,
höldum uppá þann elsta og mer kasta
höfuð búnað.

[ath! eftirfarandi er athugasemd á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> og er þessi faldr
síndur á þeim
og sinir það aldur
hans því þær eru
álitnar að vera hátt
á 3 þúsund ára gamlar

bls. 10 frh.


II Margir vilja svívirða faldinn með því, að kalla
hann hrúts horn, af því, að hann er beygður fram
á við, þetta er bjánaháttur, sem fellir sjálfan
sig; því ómögulegt er að gjöra faldinn hlægilegan
með þessu, og engum hefir dottið þetta í hug nema
Íslendingum á seinustu tímum, því öllum þjóð-
um þykir [1]<image>[∫]</image> einmitt fagurt, að hafa frambeygð
höfuðföt; og það hefir þótt fagurt frá alda öðli
og hefir enginn spurt íslenzka hrútshyrninga
um leyfi. En tólfunum kastar þó þegar menn
ætla að auka álit þessarar hrútshyrningshug-
myndar með því, að segja að danskir sjó-
hermenn
hafi fundið upp samlíkinguna; þeir
aumíngjarnir sem aldrei hafa hrútshorn séð! því til fróð-
leiks fyrir yður, hrútshyrnings hugmynda


[ath! eftirfarandi athugasemd var á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> og hefir þótt

bls. 11

11:::


feður eðurog mæður, út því að hatur yðar við faldinn
hefir lagt yður svo laglega á bragði fávisku yðar
skal eg lata yður vita,
að danskir hrútar eru kollóttir.
Hér má geta
þess, að hægt er ætíð að finna nógar óhroða sam-
líkingar um alltmargt í íslendska búningnum, [1]<image>[∫]</image> t.d. menn geta
líkt hinum vanalega útlenda kvennhatti,
eins og hann tíðkast hér optast, við skinn,
sem bundið er yfir áburðarkrukku; því hin
rikkta fliksa, sem er aptan á hálsinum og
gjörir hvern kvennmann hálslausan, líkist
mest af öllu, er vér höfum séð, ruðum sem
nema niðurundan. bandi á kollu skinni; en
kappinn þykir ossX[2] ofur áþekkur hálfskrælnuðu
þöngulhöfði. því Á köppunum standa ótal ángar
út í loptið; engin verður séð aðalstefna þeirra,
en um horfir hvað og verður svo þetta dýr
keypta höfuðfat að smekkleysu ginnúnga
gapi. Það er dýrðleg sjón
! – Það liggur í aug-
um uppi að á hjálmum, sem eru úr málmi geta
menn haft hvert það lag, er mönnum líkar bezt; hvers
vegna hafa þá Grikkir valið hinum fagra og fræga
hjálmi sínum fram beygða lagið? hvers vegna höfðu

[ath! eftirfarandi athugasemdir voru á hægri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> og í hverjum búníng, sem er
en oss mun ekki skorta
slíkan varning, ef í það fer,
því allar gjafir þiggja laun
sem gefnar eru af góðum hug,
vér vljum<ref>[<corr>viljum</corr>]</ref> því álíta oss skilt að
koma með sínis horn af þess konar vöru,
[2] X segjum vér þáð að sé

bls. 12

12:::


Romverjar hinir fornu [1]<image>[∫]</image> eins eður meira fram á við beygða?
hvers vegna höfðu Angilsaxar sína hjálma frambeygða
eins og fald og Íslendingar eins, og hvers vegna hafa
flestar þjóðir enn í dag hjálma sína frambeygða?
[2]er það það af því það þykir flestum fegurst, eður
er það af því að þeir eru allir smekklausir, nema
þeir Íslendingar einir er lyta faldin? hvort mundi réttara?
Eptir allt þetta komûmst ogver að þeirri niðurstöðu,
að til þess að geta sannað, að faldurinn sé ljótur
verði menn að neita því, að nokkur fegurð sé í
mindasmíða- og málara- íþrótt Forngrikkja og meñ
verða þá að afneita alls heimsins fegurðartilfinningu. [3]<image>[∫]</image> En að
slíkum dómadags þverhöfðum er þó í sannleika
oskandi að menn gjöri sig ekki. EgVer erum nú svo sann-
færður um, að faldurinn er af góðum rótum sprottinn,
og í alla staði bygður á fegurðartilfinning, að ogver
hirðum alls ekki um hvort margir iða<ref>[<corr>eða</corr>]</ref> fáir kalla hann
hrútshorn, eða segja, að hjálmar sé hrútshorn og
að öll íþrótt og smekkur sé vitleysa er ómögulegt
sé að dæma um; því það er sannað af mörgum,
að það er rangt eðr Þó menn segi að þeir geti orðið
[4]sáluhólpnir án allrar fegurðartilfinningar þá verða
þeir það ei fremur viðmeð smekkleysi það géta þeir átt
víst
Nú munu menn segja að fyrst það er sami

[ath! eftirfarandi athugasemdir voru á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> sína hjálma
[2]en Íslendingar einir hafa smekk?
[3]<image>[∫]</image> Bæði að fornu og nyu
[4][???????]
[???????]<ref>[Hér er búið að krassa svo mikið yfir að það er ólæsilegt.]</ref>

bls. 13

13:::


að, að faldurinn með því forna lagi sé ekki íslenskur,
þá sé ekki vert, að hafa hann. Vér svörum þessu
einungis því, að faldurinn er ekki einungis íslenskur
heldur lángtum le eldri; hann er eins og íslenzkan,
málið, sem nú er, er íslenzka, aður var það norræna
þar á undan Asíu mál, og kom hingað með Ás
um eins og faldurinn. Ef menn binda sig við á-
þekkan einstrengingsskap þessum, þá erum vér
heldur ekki íslenzkir heldur, Normenn eð aðrir<ref>[ath! óskýr skrift.]</ref>
Allt verður að hafa sinn uppruna og líkjast ein-
hverju, og þótt faldurinn líkist hjálmi, þá er hann
ekki gjörður eptir hjálmunum, og réttar mundi
vera, að segja að hjálmarnir sé eptir stæling af
faldinum.
Sumir þykjast ei skilja hvað faldurinn
sé, og þykir hann óeðlilegur. [1]<image>[∫]</image>En eg vona að faldurinn
sem frambeygð húfa (því annað er hann ekki í raun
inni) sé fullt eins eðilegur, ef ekki eðlilegri en
hver önnur húfa
, og eins léttur og haganlegur
þegar hann er réttur eptir því forna sniði ( bréf-
eða blöðku faldinn tölum vér ekkert um). Því það er alkunnugt að han [2]
Niður undan faldinum sest hárið og þegar
gilt höfuð band kemur um ennið, þá er þetta
full skrautlegt. Þótt sumir finni það að faldin-
um að hann er hvítur, þá verður þetta ekki
talið honum til lasts, þegar menn alhuga

[ath! eftirfarandi athugasemdir voru á hægri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> Vér svörum því: faldurinn
er frambeygð húfa, eins eðli-legur og hver önnur húfa, og
[2] er ekki eldri en frá því
um seinustu aldamót.
og gétur því eingum skínsöm
um manni komið til hugar að
han sé forni faldurin.
sumir hafa samt verið að
streitast við af alefli að sanna
bæði innlenðum og útlendum
að blöðku faldurin sé sá
elsti. enn eins á þreifanleg
vitleisa gétur mönnum ekki
haldist uppi til leingdar, óhindrað,

bls. 14

14:::


að vanalegt er að hafa útlenda skrauthatta og kappa
hvíta, er enginn finnur að, af því það er útlent. <image>[∫ hér hefur ritarinn skrifað á annað blað viðbætur sem eru því settar inn hér í framhaldinu.]</image>

bls. 14 (b)

bl 14 <image>[∫]</image> í annari línu:::


sumir vilja bera á móti því að það hafi áður
verið síður að sína hárið niður undan faldinum,
véreg höfum áður þóst verða var við sagt að þellað<ref>[<corr>þettað</corr>]</ref>
muni vera æfa gamall siður [1]<image>[∫]</image> og finst oss,mér martí sög-
on um benda á þáð, enda höfim vérog mikið stirkst
í þessari trú, við það að ogvér höfumm séð mindir er
sem eru gérðar 1680 á hverjum hárið sést niður
undan faldinum, en þá er eitt sem best sannar
að þessi vor til gáta muni vera rétt, vestur í
Önundarfirði hefir verið alvenja að láta alt
hárið sjást niður undan faldinum, og það í
manna minnum sem nu lifa, og sem eru tæplega
miðaldra. vegna þess að þettað hefir einmidt
haldist við á þeim af skéktasta stað á landinu
á lítum ogvér mikla á stæðu til að halda að þettað
sé sá forni siður

[ath! eftirfarandi athugasemdir voru á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> sjá ní
félagsrit
17 ár <ref>Sigurður Guðmundsson: „Um kvennbúnínga á Íslandi” Ný félagsrit 17. árg. (1857) Forstöðunefnd: Arnljótur Ólafsson, Gísli Bryjnúlfsson, Grímur Þorgrímsson, Jón Sigurðsson, Guðbrandur Vigfússon. Kaupmannahöfn 1857, bls. 1-53: [3]</ref>

bls. 14 frh.


Vér verðum að geta þess að sá helzti munur, sém
er á fornaldarfaldinum og þeim, er vér höfum
stungið upp á, er sá, að hin forni var vafinn
upp úr tröfum <ref>[„traf trafs, tröf HK 1. ferhyrndur hvítur klútur (með fjórum skautum), einn af tveimur til fimm, sem notaðir voru til þess að vefja trafafald (skautafald), höfuðbúnað íslenskra kvenna (frá 16. öld til um 1800)”Íslensk orðabók Reykjavík 2002.]</ref> og beygður svo fram á við;
til þess þurfti sérskilda æfingu [1]<image>[∫]</image>, en vér höfum
stungið upp á að hafa faldinhann sniðinn og saum-
aðan sem aðra tilbúna húfu, er menn gætu
fljótlega sett á höfuð sér. Vér ætlum að þetta
sé ei skaðleg breyting, þegar ekki er meiru
breitt [2]<image>[∫∫]</image> En þess má og geta, ef menn spyrja
af hverju menn viti hvernig faldurinn hefir
verið áður, að þá liggur svarið við: af mynd-
um sögum og kvæðum. Koffrið <ref>[Merking orðsins er útskýrir Sigurður hér í textanum sem orð dregið af þýska orðinu kopf eða höfuð. Sigurður og félagar mæla gegn notkun þess orðs.]</ref> halda menn að
hafi einungis verið brúðar búníngur, en það er
rángt, og biðjum vér menn að líta á myndir
í ferðabók Eggerts Ólafssonar. Þar finst mynd-
uð brúðir í öllu brúðarskarti, og einnig meiri
háttar úng megmær, sem ekki er í brúðar-
búníngi og hefir hún eins koffur og brúðurin
nema búðarkoffins er lítið eitt þéttara
sbr mynd af brúðargáng frá 16. öld, sém enn
eru til. Ka Vér hofum hér orðið koffur, því
það er orðin lenska, að hafa það orð um höfuð
band
og gullband eður gullhlað. Vér viljum

[ath! eftirfarandi athugasemdir voru á vinstri spássíu. Númeramerkt hér]:
[1]<image>[∫]</image> og var þettað ekki alllítill
vandi ef vel átti að fara,
enda var þessi að ferð opt
orsök til að faldarnir urðu
mjög misjafnir og opt ljótir
hjá þeim er miður voru
vel að sér.
[2]<image>[∫]</image> enða gétur og vel verið a hinir
fornu faldar hafi tíðum
verið sniðnir og saum aðir
því sturlúnga gétur um
lín hufur á konum, er ogver
higgjum að hafi verið eins konar
fald tegund.

bls. 15


stínga upp á að fólk. leggi niður þetta orð, því það
er slæmt orð og ilt mál, og mun= ver afbökuð
þjóðverzka og komið af “kopf”= höfuð. En
höfuðband, hofuðdrejgill, gullband og gullhlað er
allt gömul og góð íslenzka um sama hlut.
Höfuðdukurinn er mjög gamall, sem sögurnar
sýna; eg hefi og kvennmanns mynd er mun
vera frá 15. öld; þar sést faldurinn, og er
kastað höfuðdúknum yfir faldinn og fellur
hann aptur af faldinum , en einnig mun
höfuð dúkur inn hafa fallið niður undan
faldinum að aptan, eins og á normandiska ind verska
og kákasiskafaldinum. Margar af öldrað
um<ref>[<corr>öldruðum</corr>]</ref> konum halda að það sé ómogulegt að
annar búníngur sé gamall og íslenzkur en
sá sem þær sáu hjá á ömmu sinni, elsku
kerlingarnar mínar! Ísland hafði verið byggt
í mörg ár áður en hún amma ykkar var gétin
og á þeim árum skeði margt, sem amma
ykkar heyrði ekkert talað um. Nú þykir
vis ekki þörf að tala meira um faldinn að
sinni. En vita skulu menn það að vér géfum
ekki upp vörnina héðan af heldur en híngað
til fyrir einúngis sannanalausum dómum,
en fyrir sannleikanum viljum vér víkja úr
vegi hvaðan sem han kémur, og greiða götu hans ef oss er það unt.
Sigurður Guðmundsson


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands, bls. 101: „5. Ritgerðir um kvenbúninginn. Mappa, fjólublá að lit með svörtum dílum. 19.5 x 24.2 cm. Spottar hafa verið áfastir spjöldunum til að binda möppuna saman, en nú er aðeins annar þeirra til staðar. Í möppunni eru þrjár ritgerðir um kvenbúninginn: Faldurinn – sem ekki er skrifuð með hendi Sigurðar, en bæði athugasemdir og undirskrift er hans.”
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: 06.2012

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar