Verkefni (Lbs489,4to 29r)

Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

Texti

Kappræðuspurningar.

1. Snorri goði. Hvaða þátt á hann í sögu Íslands og stjórnar

skipun þess?

2. Hverjir voru mestir nýðingar í fornöld?

3. Hver jir voru varkvendi hin verstu að fornum sið?

4. Um mansmenn í fornöld um uppruna þeirra, hag og

endugt? Sv. Skúlason.

5. Um biskupa Íslands, tign þeirra ríki og álit að fornu

og nýju?

6. Eptir hverju eiga skáld vor að fara í efnisvali og búningi?

7. Hver áhrif hefir breytilegt loptslag og landslag hjer á

landi á lundarlag manna, skynbragð og skapsmuni?

(Gísli Magnússon.)

8. Hvernig má taka hentug yrkisefni til sorgarleika í

Njálu? (M. Jochumsson).

9. Hvað veldur því að sjerstaklegir búningar myndast

hjá hinum ýmsu þjóðum? (Sig. Guðmundsson).

10. Hvað einkennir þjóðbuning Íslendinga og af

hvaða rótum er hann runninn (sami).

11. Hvað er myrkfælni? Af hverju kemur hún?

12. hvað hefir Reykjavík sjer til ágætis fram yfir

sveitina (Á. Gíslason)

13. hverjar nýjar hugmyndir vakna hjá námsmönn

um þegar þeir flytjast frá einu námskeiði

til annars, og sjerílagi þegar þeir fara frá

Lærða skólanum á Prestaskólanum (Kr. Jónsson)

14. Er það satt sem Seneca segir að það sje gott

fyrir ungan mann að lafa þekkt það

sem illt er (G. Gunnarsson)


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: