Verkefni (Lbs489,4to 30v)

Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

Texti

49. Böl er búskapur ec þetta á að sanna að satt sje.

50. Hverskonar böl höfðu fornmenn?

51. Er ekki trúarbrögð óþörf en íslenzki faldurinn

þó þarfur? (S. Guðmundsson.)

52. Eðli og lækning giktarinnar? (Zeuthen)

53. Því er byldinum sjaldnar beitt í hinni nýju

læknisfræði en í hinni eldri?

54. Telst það ekki til hreinlyndis að gefa kunningja

sínum á kjaptinn?

55. Hvernig stendur á, að mönnum á hverri öld

sem er hættir við að lofa fyrri aldirnar,

en gjöra lítið úr sinni öld (G. Magn.)

56. Um djöfulinn, framfarir hans og aptur-

farir? (Þor. Bjarnason)

57. Hvort er meira gagn að búnarfjelagi eða lestrar-

fjelagi? (G. Gunnarsson)

58. Á hverjum aldri þykir bóknám rjett byrjandi?

og hvenær fyrst byrjandi og hvernær síðast

byrjandi?









  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: