Munur á milli breytinga „Bréf (SG02-222)“

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Lína 99: Lína 99:

Jóni Þorkélssyni sem vist er fullt eins fær

Jóni Þorkélssyni sem vist er fullt eins fær

þó þeir haldi sumir að þeir sé óviðjafnan

þó þeir haldi sumir að þeir sé óviðjafnan

leigir af því þeir eru itra

leigir af því þeir eru itra?

þú skalt ekki halda eg eg(sic) haldi að hér

þú skalt ekki halda eg eg haldi að hér

heima sé alt vel eða öllu betra að öllu

heima sé alt vel eða öllu betra að öllu

saman lögðu það mun vera mjög nærri um

saman lögðu það mun vera mjög nærri um

skít og kúk, hér hafa menn varla vit á á(sic)

skít og kúk, hér hafa menn varla vit á á

neinu (sem þó er að sumu leiti meiri vorkun)

neinu (sem þó er að sumu leiti meiri vorkun)

menn hafa nær því einga tilfinning fyrir

menn hafa nær því einga tilfinning fyrir
Lína 111: Lína 111:

tilfinning altaf hniginn þessi árinn utannlans

tilfinning altaf hniginn þessi árinn utannlans

og innan að undan teknum einstaklingum

og innan að undan teknum einstaklingum

hér verða nú allir að heita *sem*(u) ef þeir

hér verða nú allir að heita sem ef þeir

annars eru ærlegir menn kallaðir og kvennsnipt

annars eru ærlegir menn kallaðir og kvennsnipt

innar eru gerðar graðar Madama *Ásta*(i) Bustikus?*

innar eru gerðar graðar Madama Ásta Bustikus?*

son og Mad Krákson þið ættuð að skrifa á móti

son og Mad Krákson þið ættuð að skrifa á móti

því og líka við hér heima því með því er

því og líka við hér heima því með því er

Útgáfa síðunnar 22. nóvember 2013 kl. 13:28

• Handrit: SG 02:222 Bréf frá Sigurði Guðmundssyni til Steingríms Thorsteinssonar
• Safn: Þjóðminjasafn
• Dagsetning: 30. okt. 1866
• Bréfritari: Sigurður Guðmundsson
• Staðsetning höfundar: Reykjavík
• Viðtakandi: Steingrímur Thorsteinsson
• Staðsetning viðtakanda:

• Texti:

bls. 1

Reykjavik 30 october 1866

Goði vin

Eg þakka þér fyrir þitt góða bréf og
þikir mér gótt að þér líkaði það þótt það
væri nokkuð harðort enn um hvað
géta menn talað öðru vísi á þessum
tímum það var ekki meir enn von var
á að eitthvað irði sögulegt í Péturs veizlunni
þar sem slikir garpar vóru saman komnir
því allur garpskapur heldri manna í Höfn
og hér heima geingur út á að skita hvern
annan út og helst þá sem eitthvað duga
hvað er nú orðið af samheldni og samtökum
Íslendinga í höfn? nema hverjum öðrum til
ils það er það einasta sem þeir nú géta.
og það sjáum við altaf jafn vel á prenti
fyrir utann alt annað sem gerist í laumi
sem þó allir vita, enn eingu öðru miðar
áfram það er sami skíturinn og hér heima
og þó verra því þeir hafa þó betri tök á
að géra eitthvað. félagsritinn eru dauð sem
sem var það helsta lífsmark þeirra í höfn
þar í staðinn eru kominn kúkablöð og enn
nú kúkugri og stefnu lausari blað artikular
sem einungis eru til að vekja ósamlindi og
flokkadrátt og að umturna trú sem áður
var hér full gott og óþarfi að breita eins
og trúnni, enn það er þeim að kénna það sem
nú kann að vera farið að spillast í henni.

bls. 2

hvern fjandann varðar okkur um [[Magnús Eiríksson|Magnus
Eiriksson það eru vist flestir sem þekkja hann
Eins og Einar í Nesi, enn hverugan aðgáu þó þeir
látum þá báða vera gáfaða menn eins og sagt er enn
svo eru higgindi sem í hag koma þeir hafa báðir
komið fram einúngis til ils að mér finst gért æsingar í
því sem er ilt eða óþarft og sem þessi tími hefir
síst af öllu enga þörf á allra síst á íslandi, enn hvað gott hafa
þeir gért ekkert það eg veitt. jú viti menn það er sind
að segja að Gísli okkar hafi ekkert gert hafi
hann skrifað skamma artikalana um Jón Sigurðsson
eða hjálpað til þess það var þá meira praktískt enn eg átti von á af hönum
að hann skrifaði það fyrir dani því hann mátti
vita, að einginn hér heima skeitir um hvað slík
persána ruglar því hvör þekkir hann og hvað sjá
menn eptir hann sem vit er í sá kann ekki að
bæta brók annars sem ber er um rassinn sjálfur
og hvað er þeim að reiðast sem einginn rækir
hvort von eða haus snir uppá að þeir skuli vera
þau börn að halda að nokkur fari eptir þó þeir
sjái nöfn nokkurra tudda manna í Höfn
undir vitlausum hraða greinum sem einga
stefnu hafa til góðs eða ils nei ef þeir eiga
að halda að við hlaupum gapandi eptir hverri
þeirri vitleisu þá verða þeir að sína sig töluvert
sómasamlegri og líkari mentuðum mönnum, hafa þá
betra samlindi enn vestu dónar, og géra
eitthvað sem miðar til góðs auðsjáanlega,
géfa út meira enn kúkablöð og artikula, og
lata það ekki verða einungis hringl frá
upphafi til enda einungis til skammar og athlægis
fyrir ala þjóðina. þess háttar dáða verk þurfum
við ekki að sækja til hafnar og nóg er líka af
þeim sem ekkert géra hér eins og sumir þar

bls. 3

Eg vil ráða þeim þarna itr að sigla ekki
nema í hálfu tré ef þeir ekki betra sitt
framferði sem er enginn fyrir mind, því
satt að segja þá held eg það sé orðið skárra herna
þó þeir þarna itra geti afskrifað forna bók
þá á lít eg það einginn vísindi sem sé teljandi
og það gætu vist margir hér heima með heilri
lífs æfing, þeir sem halda þettað að þetta
sé eingum fært nemað þeim í höfn gleima
illa Sveinbirni Egilssyni og jafn vel
Jóni Þorkélssyni sem vist er fullt eins fær
þó þeir haldi sumir að þeir sé óviðjafnan
leigir af því þeir eru itra?
þú skalt ekki halda eg eg haldi að hér
heima sé alt vel eða öllu betra að öllu
saman lögðu það mun vera mjög nærri um
skít og kúk, hér hafa menn varla vit á á
neinu (sem þó er að sumu leiti meiri vorkun)
menn hafa nær því einga tilfinning fyrir
neinu og flestir heldri menn fara að geispa
ef Íslenzkt eða Ísland er nefnt og megnið
af skólanum segir amen mér finst allri þjóðar
tilfinning altaf hniginn þessi árinn utannlans
og innan að undan teknum einstaklingum
hér verða nú allir að heita sem ef þeir
annars eru ærlegir menn kallaðir og kvennsnipt
innar eru gerðar graðar Madama Ásta Bustikus?*
son og Mad Krákson þið ættuð að skrifa á móti
því og líka við hér heima því með því er
máli voru stór hætta búinn og sem altaf
fer vaxandi fyrir utann hvað það er
svívirðilegt að álíta að það sé
veglegra að heita uppa dönsku

bls. 4

en Íslensku
Eins og eðlilegt er þá miðar *forn-
gripasafninu*(u) ekkert að marki áfram
og hvað géta menn gért á þessum tímum
án peninga *hér um bil alt sem þar er gért
verð eg að geran(sic) og kasta úr eiginn vasa*(u)
það er ekki mikið enn það dregur sig saman
allra helst *ómakið þegar heimtað er að maður
géri margt fyrir ekki neitt.*(u) safnið hefir þó
feingið hátt á 4 hundrað Nr.
Íslenski kvennbúningurinn virðist að
muni halda áfram og altaf aukast þær
sem hann bera þó að hér sé undarleg
*lausúng*(u) í fáldi og dönsku spenningur
mest í því heldra sem en er það skaðlegasta
að það er tvenskonar kinslóð
sem eg tala um sem er Svartabrauðs
og skóuroks dónar því dónar eru dónar
hvort sem þeir eru úr fínu eða grófu
efni. af bragðinu skaltu þekkja þá
bara þú segir ekki eins og kérlinginn um
of marga „Smakki fleiri hvört ekki er hland„
öll þjóðinn til samans e einlægt kláðanöldur og
og(sic) stjórnar og fjár hagsbót sem seinast verður
að lúsugri rassbót svo að þjóðinn verður
her eptir altaf að núa rassinn héðann í frá
og að eilífu amen

Sigurður Guðmundsson

• Gæði handrits:
• Athugasemdir:
• Skönnuð mynd:sarpur.is

• Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
• Dagsetning: 07.2011

• Sjá einnig:
• Skýringar:

<references group="nb" />

• Tilvísanir:

<references />

• Hlekkir: