Bréf (SG02-222)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 13:52 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 13:52 eftir Olga (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: Höfn, blaðaútgáfa, trúmál, Forngripasafn, kvenbúningur
  • Efni: „Sundurlyndi meðal Íslendinga í Höfn. Blaðaútgáfa meðal Íslendinga þar. Illt ástand í trúmálum og málum þjóðarinnar almennt. Forngripasafnið og vandamál þess. Kvenbúningurinn og útbreiðsla hans o.fl.“ [Sarpur, 2015]
  • Nöfn tilgreind: Pétur ?, Magnús Eiríksson, Einar í Nesi, Gísli ?, Jón Sigurðsson, Sveinbjörn Egilsson, Jón Þorkelsson, Madama Ásta? Mad Krákson?,

  • Texti:

bls. 1


Reykjavik 30 october 1866

Goði vin

Eg þakka þér fyrir þitt góða bréf og þikir mér gótt að þér líkaði það þótt það væri nokkuð harðort enn um hvað géta menn talað öðru vísi á þessum tímum það var ekki meir enn von var á að eitthvað irði sögulegt í Péturs veizlunni þar sem slikir garpar vóru saman komnir því allur garpskapur heldri manna í Höfn og hér heima geingur út á að skita hvern annan út og helst þá sem eitthvað duga hvað er nú orðið af samheldni og samtökum Íslendinga í höfn? nema hverjum öðrum til ils það er það einasta sem þeir nú géta. og það sjáum við altaf jafn vel á prenti fyrir utann alt annað sem gerist í laumi sem þó allir vita, enn eingu öðru miðar áfram það er sami skíturinn og hér heima og þó verra því þeir hafa þó betri tök á að géra eitthvað. félagsritinn eru dauð sem sem var það helsta lífsmark þeirra í höfn þar í staðinn eru kominn kúkablöð og enn nú kúkugri og stefnu lausari blað artikular sem einungis eru til að vekja ósamlindi og flokkadrátt og að umturna trú sem áður var hér full gott og óþarfi að breita eins og trúnni, enn það er þeim að kénna það sem nú kann að vera farið að spillast í henni.


bls. 2

hvern fjandann varðar okkur um [[Magnús Eiríksson|Magnus Eiriksson það eru vist flestir sem þekkja hann Eins og Einar í Nesi, enn hverugan aðgáu þó þeir látum þá báða vera gáfaða menn eins og sagt er enn svo eru higgindi sem í hag koma þeir hafa báðir komið fram einúngis til ils að mér finst gért æsingar í því sem er ilt eða óþarft og sem þessi tími hefir síst af öllu enga þörf á allra síst á íslandi, enn hvað gott hafa þeir gért ekkert það eg veitt. jú viti menn það er sind að segja að Gísli okkar hafi ekkert gert hafi hann skrifað skamma artikalana um Jón Sigurðsson eða hjálpað til þess það var þá meira praktískt enn eg átti von á af hönum að hann skrifaði það fyrir dani því hann mátti vita, að einginn hér heima skeitir um hvað slík persána ruglar því hvör þekkir hann og hvað sjá menn eptir hann sem vit er í sá kann ekki að bæta brók annars sem ber er um rassinn sjálfur og hvað er þeim að reiðast sem einginn rækir hvort von eða haus snir uppá að þeir skuli vera þau börn að halda að nokkur fari eptir þó þeir sjái nöfn nokkurra tudda manna í Höfn undir vitlausum hraða greinum sem einga stefnu hafa til góðs eða ils nei ef þeir eiga að halda að við hlaupum gapandi eptir hverri þeirri vitleisu þá verða þeir að sína sig töluvert sómasamlegri og líkari mentuðum mönnum, hafa þá betra samlindi enn vestu dónar, og géra eitthvað sem miðar til góðs auðsjáanlega, géfa út meira enn kúkablöð og artikula, og lata það ekki verða einungis hringl frá upphafi til enda einungis til skammar og athlægis fyrir ala þjóðina. þess háttar dáða verk þurfum við ekki að sækja til hafnar og nóg er líka af þeim sem ekkert géra hér eins og sumir þar


bls. 3

Eg vil ráða þeim þarna itr að sigla ekki nema í hálfu tré ef þeir ekki betra sitt framferði sem er enginn fyrir mind, því satt að segja þá held eg það sé orðið skárra herna þó þeir þarna itra geti afskrifað forna bók þá á lít eg það einginn vísindi sem sé teljandi og það gætu vist margir hér heima með heilri lífs æfing, þeir sem halda þettað að þetta sé eingum fært nemað þeim í höfn gleima illa Sveinbirni Egilssyni og jafn vel Jóni Þorkélssyni sem vist er fullt eins fær þó þeir haldi sumir að þeir sé óviðjafnan leigir af því þeir eru itra? þú skalt ekki halda eg eg haldi að hér heima sé alt vel eða öllu betra að öllu saman lögðu það mun vera mjög nærri um skít og kúk, hér hafa menn varla vit á á neinu (sem þó er að sumu leiti meiri vorkun) menn hafa nær því einga tilfinning fyrir neinu og flestir heldri menn fara að geispa ef Íslenzkt eða Ísland er nefnt og megnið af skólanum segir amen mér finst allri þjóðar tilfinning altaf hniginn þessi árinn utannlans og innan að undan teknum einstaklingum hér verða nú allir að heita sem ef þeir annars eru ærlegir menn kallaðir og kvennsnipt innar eru gerðar graðar Madama Ásta Rustikus son og Mad Krákson þið ættuð að skrifa á móti því og líka við hér heima því með því er máli voru stór hætta búinn og sem altaf fer vaxandi fyrir utann hvað það er svívirðilegt að álíta að það sé veglegra að heita uppa dönsku


bls. 4

en Íslensku Eins og eðlilegt er þá miðar forn- gripasafninu ekkert að marki áfram og hvað géta menn gért á þessum tímum án peninga hér um bil alt sem þar er gért verð eg að geran og kasta úr eiginn vasa það er ekki mikið enn það dregur sig saman allra helst ómakið þegar heimtað er að maður géri margt fyrir ekki neitt. safnið hefir þó feingið hátt á 4 hundrað Nr. Íslenski kvennbúningurinn virðist að muni halda áfram og altaf aukast þær sem hann bera þó að hér sé undarleg lausúng í fáldi og dönsku spenningur mest í því heldra sem en er það skaðlegasta að það er tvenskonar kinslóð sem eg tala um sem er Svartabrauðs og skóuroks dónar því dónar eru dónar hvort sem þeir eru úr fínu eða grófu efni. af bragðinu skaltu þekkja þá bara þú segir ekki eins og kérlinginn um of marga „Smakki fleiri hvört ekki er hland„ öll þjóðinn til samans e einlægt kláðanöldur og og stjórnar og fjár hagsbót sem seinast verður að lúsugri rassbót svo að þjóðinn verður her eptir altaf að núa rassinn héðann í frá og að eilífu amen

Sigurður Guðmundsson





  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: