EMtilJS-58-12-10

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

  • Texti:

bls. 1


Reykjavík 12. Okt 1858
Háttvirti herra!
Presturinn, síra B. Eiríksson að Guttormshaga í Holtum,
hefir beðið mig, að skrifa yður fyrir sína hönd, og biðja yður,
að útvega sér, ef unt er, "máldaga fyrir jörðinni Haukafelli
í Hornafirði með landamerkjum milli aðliggjandi jarða,
sér í lagi Rauðabergs og þá líka Holta og Holtasels". Ennfremur
"máldaga með landamerkjum Guttormshaga og Saurbæjar".
Til stuðnings við þetta síðara landamerkjabréf lætr hann
meðfylgjandi blað fylgja. – Fyrir það ómak, er þetta kynni
að kosta yður, biður hann mig að skila til yðar að gefa
sér reikning, og kveðst hann skuli borga það, eins og og þér
áskiljið. Fáist þessir máldagar, getið þér sent mér þá
og skal jeg koma þeim til skila.
Fyrirgefið flýtinn! yðar
Eiríki Magnússyni



  • Skráð af: Svavar Steinarr Guðmundsson, eftir ljósmynd af frumriti.
  • Dagsetning: Júní

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar