Fundur 16.feb., 1872

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 28. janúar 2015 kl. 11:59 eftir Eoa2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. janúar 2015 kl. 11:59 eftir Eoa2 (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1871-74.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti

Bls. 1 (Lbs 488 4to, 0060v) 18. fundur. 16. febr. Fyrst tók Jens Pálsson til máls um hiðaca- demiska frelsi, sem frummælandi: þá er talað er um bundið frelsi í latínuskólanum þá er það eigi að skilja um neinn þrældóm, heldr um þá nákvæmu niðurskipun og reglu, sem piltum ber að fylgja, en sem er þó ófrelsi í samanb. við hið óbundna líf, og prestaskólanum. Hið bundna líf hefur þá kosti, að því er samfara regla og samheldi, en þá ókosti, að þeirþetta eru of mjög takmarkaðir í eiginl. tilliti, í skemtunum, og í lærdómi. Fyrir kennarana hefr þetta þá kosti,



Bls. 2 (Lbs 488 4to, 0061r) að þeir þekkja eða geta þekkt pilta betur, og náð öllum réttum sínum gagnvart piltum. þetta líf hefur einnig marga óskosti, og má til þess rekja það, að það gefr tilefni til þess, að farið er í kringum þau með mörgu móti, sem jafnan er þar sem lög eru ströng og ná- kvæm, og eiga fremur við börn en hálffulorðna menn, sem hér er. Hér við bætist það, að stjórn- endurnir beita lögunum út í yztu æsar, og banna piltum jafnvel að hafa nokkra meiningu, við öðrum orðum hugsa. Ennfremur má telja það, að þegar einhver er hneygður til einhvers sérstaks, þá er honum bannað að stunda það, en þvingaðr til að stunda af alefli annað, sem hann er mjög illa lagaðr fyrir. og getr aldrei orðið nýtur í, og stundum gengur þetta svo langt, að piltur er settur eptir, ef hann hefr einum 1/3 of lítið í lat. * þó hann hefi 4 2/3 út í höfuðeinkunn. Á prestaskólanum eru meiri mórölsk bönd, en lagabönd og er því það frelsi sem þar er, miklu betur notað; þó ýmisl. sé að prestaskólanum þá leyfir einmitt frelsi hans, að komast



Bls. 3 (Lbs 488 4to, 0061v) undan þeim göllum, sem á honum eru í t.d. nú sem stendr eru líka miklu frjálslyndari stjórnendur prestaskólans en latínuskólans. Andmælandi Sigurður Gunnarsson: Að vísu þurfa piltar sem engir menn og nær því börn, nokkuð aðhald, en það verðr að varast að þrengja ei að þeim um of. Ef þess er gætt að beggja hálfu, að hvorugir piltar og börnin fara ekkert út yfir lögin, þá geteur þó það gengið sæmil. með því fyrirkomulagi sem er. Viðvíkjandi hinum academiska frelsi, þá er mest komið undir því, að þeir sem þess njóta, misbrúki það ekki; en annars held jeg það sje alls ekkert of mikið frelsi Andmælandi Jón Bjarnason: Höfuð- kostr hins bundna lífs í latínuskólanum er að það er bundið, og höfuðkostr hins óbundna lífs á prestaskólanum er að það er óbundið; hvorttveggja þarf með, fyrst hins bundna lífs, síðan hins óbundna, því fyrst þarf maður að læra að hlýða, en



Bls. 4 (Lbs 488 4to, 0062r) síðan að stjórna sér sjálfr. Jeg legg fasta áherzlu á það fastar reglur séu handa mönnum að fylgja og hlýða að fullu; en hér er komuð undir því tvennu, fyrst að hinir undirgefnu hlýði, og síðan að hinir yfirboðnu láti hlýða, en fari þó eigi lengra en lög standa til. þar þyrfti ef vel væri að halda skoðunargjörð árlega í skól- anum, til að controllera bæði kennarana þá tek jeg til dæmis það, að utanskóla- menn þyrftu að vera við inntökupróf, engu síður en en við burtfararpróf, og svo er um fleira. það er víst engin stofnun, er eins lítið controllerað sem tínu- skólinn; piltar eru að vísu nokkuð con- trolleraðir, en það þarf líka að con- trollera kennarana, svo ekki kallist á. - það væri mjög óheppil., ef hið bundna



Bls. 5 (Lbs 488 4to, 0062v) líf, þó það sé gott í sjálfu sér, sé b brúkað á embættismannaskóla, því þar þurfa menn að sýna sig í tíma hvort þeir fara í hundana eða ekki, áður en þeir verða embættismenn. Frummælandi Jens Pálsson: Síðari and- mælandi talaði mjög vel í flestar en mest fyrir utan efnið. Fyrri andmælandi var mér í flestu samþykkur. Jeg er því að mestu samþykkur og ánægður með báða. Andmælandi Jón Bjarnason: Frum- mælandi fór eigi síður út fyrir efnið en jeg þar sem hann minnist á fyrirlestrana á prestaskólanum. Viðvíkjandi þeim hef jeg það að segja að það er það versta og vit- lausasta fyrirkomulag sem til er, því það gjöri ekkert annað en eyða fyrir manni tíma o.s.frv. Frummælandi Jens Pálsson: Jeg skildi ei orð andmælanda; mér heyrðist hafa á móti því að prestaskólinn væri



Bls. 6 (Lbs 488 4to, 0063r) til, f (Andm.: það var ekki), og að fyrir- lestrar mundu valda leti (Andm: það gjörði það á mér); jeg er á allt öðru máli, því að það eru aðrar orsakir til letinnar. Fyrir- lestra er nauðsynl. að hafa, því að eigi eru peningar til að gefa út kennslubækur svo opt sem þyrfti. Andmælandi Jón Bjarnason: Til þess hafa menn lært dönsku, að menn geta þær lesið danskar bækur, og sé jeg ekkert á móti því eða að læra þær á því máli, eða hvaða máli sem eru, sem maður skilur. Maðr þarf eigi að rígbinda sig við einn höfund, en á að rannsaka andana. það er mjög efa- samt hver er sú rétta trú, og hvaða bækur eru bestar í þessum. - Rational- isminn Andmæl á að sigra heiminn. Andmálsmaðr Guttormur Vigfússon. hann vinnur aldrei guðs ríki. Frummálsmaðr Jens Pálsson: það væri óheppil. ef stúdentar hefðu



Bls. 7 (Lbs 488 4to, 0063v) rannsakað alla aðra annara anda, heldur en þeirra kennarans eigin anda. Andmálsmaðr Siguðrður Guðmundsson: það hefði þá farið fyrir þeim eins og Perkins Frummælandi Jens Pálsson: það væri heppilegast, ef kennarinn hefði aðrar bækur við kennsluna til grundvallar, en gæti svo bætt við af sínu eigin. Andmálsmaður Snorri Jónsson: Jeg vildi spyrja, í hverju frelsið á prestaskólanum er fólgið? Andmálsmaður Helgi Helgesen: Ófrelsið í latínuskólanum er fólgið í því, að tíminn þar er svo rígbundinn, t.d. að piltur inn má ei líta í aðra bók, en þá sem kennarinn er að kenna úr; en í ófrelsinu hafa þeir þó nokkuð frelsi, þar sem menn piltar geta brúkað allan eptirmiðdaginn hvernig sem þeir vilja, ef þeir vilja aðeins halda við skólan, og fraa eigi út. þeir eru þá einnig bundnir við lektiur, útgöngur, sofa etc.



Bls. 8 (Lbs 488 4to, 0064r) Frelsið í latínuprestaskólanum er fólgið í því, að stúdentar eigi þurfa að koma í alla tíma, og jafnvel engan, eru eigi bundin við lektiur, ei bundir við censor eða skammir, ei bundnir við háttatíma etc. þeir þurfa mega koma til Jörunar, en eiga að lifa þar vel, sbr. nou Hierosolymis fuisce, sed Hierosolymis bene viexisse, landandum est. Einhver sagði, að stúdentar væru academ- iskir borgarar; það er ei að öllu leyti rétt, þar sem þeir hafa ei fengið neitt köllunar- bréf til að vera cives academiei: þá var umræðum lokið um þetta mál. Síðan las gjaldkeri fjelagsins Óli Finsen upp reikninga fjelagsins. Síðan var valið fundarefni til næsta fundar, og var hætt við málið um gest- risnina, málinu um fyrirlestra á hærri skól- um; Frumælandi er Lárus Halldórsson, andmælendur: Jón Bjarnason og Stefán Pétursson.



Bls. 9 (Lbs 488 4to, 0064v) Síðan voru kosnir frummælendur á ýmis mál, til síðari tíma. H.E.Helgesen Valdimar Briem





  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Elsa
  • Dagsetning: 01.2015

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar