„Fundur 20.feb., 1863“: Munur á milli breytinga
m (Fundur 20. feb., 1863 færð á Fundur 20.feb., 1863) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[File:fundarbok1861-66.png|200px|thumb|right| Fundarbók, 1861-66. <br /> Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]] | [[File:fundarbok1861-66.png|200px|thumb|right| Fundarbók, 1861-66. <br /> Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]] | ||
<small>{{Fundarbók_1863}}</small> | |||
* '''Handrit''': [http://handrit.is/is/manuscript/view/is/Lbs04-0486 Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866] | * '''Handrit''': [http://handrit.is/is/manuscript/view/is/Lbs04-0486 Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866] | ||
* '''Safn''': [http://landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn] | * '''Safn''': [http://landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn] |
Nýjasta útgáfa síðan 12. janúar 2013 kl. 21:51
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 20. febrúar 1863
- Ritari: Árni Gíslason
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: 18 félagsmenn
- Lykilorð:
- Efni: kyrslur um fjárhag kvöldfélagsins; kosningar; kappræður um að maðurinn væri dýr í öllum skilningi orðsins
- Nöfn tilgreind: Sigurður Guðmundsson, Jón Árnason, Sveinn Skúlason, Gísli Magnússon, Matthías Jochumsson, Þorsteinn Jónsson, Hallgrímur Sveinsson
Texti
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0047v)
Ár 1863 20 febrúar var fundur haldinn í kvöldfélaginu
og voru 18 félagsmenn mættir á fundinum. Varaforseti stýrði fundinum
1. Lagði gjaldkeri fram skyrslur um fjárhag kvöldfélagsins
frá Októbermánuði 1862 til januar mánaðarloka 1863 og
Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0048r)
átti félagið þá alls 86 rd 2 ? voru þar af 70 rd á vöxtum
og 16 rd. 3 ? í sjóði hjá gjaldkera
2. Fóru fram kosning til að velja menn í nefnd til að
koma málefninu um minningu Íngólfs í hreifingu
voru í hana kosnir þessir Sigurðr Guðmundsson með 16 Sv Skúlason með 14 atk Jón Arnason með 16 G
Magnusson með 16 og Jon Þo??son með 13 atk
var tekið fyrir kappræðuefnið um hljóðstafi og stuðla og
3. Þessu næst skoraði varforseti á M. Jokkumson að koma
með bögur án hljoðs höfuðstafa og stuðla, sem hann ekki hafði
neitað um á síðasta fundi, en Matthías hafði ekki haft tíma
til að yrkja þær vísur. Miklar umræður voru haldnar í
þessu máli með og mót.
4. Hjelt Þorsteinn Jónsson kappræður um að
maðurinn væri dýr í öllum skilningi orðsins
Andmæltu hönum forseti og Hallgrímur Sveinsson
en þar eð ekki var tími til að ljúka ræðum um
þetta mál var umræðunum frekari frestað til næsta fundar
Jón Árnason Á Gíslason
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: 01.2013