Verkefni (Lbs489,4to 23v-24r)
- Handrit: 489 4to
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 21. nóvember 1867
- Ritari: Sveinn Skúlason
- Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)
- Lykilorð: umræðuefni, spurningar, þjóðmenning
- Efni: "Nefndarálit og uppástungur til umræðuefna fyrir veturinn 1867-68", fornöld, heimspeki, spítalar, grískir sorgarleikar, menntun, böð fornmanna, bókmenntir, dásemd náttúrunnar, móðurmálið, Alþingi, skólar, saga Reykjavíkur, fornfræði, þjóðhátíð, landnám, þýðing höfuðborga, gagn Kvöldfélagsins, markaðir og sýningar.
- Nöfn tilgreind: Sveinn Skúlason, H. E. Helgesen, ? Guðmundsson, Eiríkur Briem, ýmsar skammstafanir í spássíu.
Texti

<date when="1867-11-17">17.nóv. 1867</date> áttu undirskrifaðir nefndarmenn fund
með sjer til að ræða og samþykkja umræðuefni handa
,,Kvöldfjelaginu" þenna vetur og kom okkur saman um,
að halda þessum af hinum eldri spurningum:
Sv.Sk. 1. Um mansmein? í fornöld?
B.Kr.2. Er það satt sem Seneca segir, að það sje gott fyrir undan
mann, að hafa þekkt það sem illt er?
P.B. 3. Hver nauðsyn er á að hafa spítala í hverjum landsfjórð-
ungi?
GM 4. Að sýna ganginn í grískum sorgarleik?
GM 5. Að sýna mismun á sorgarleikjum Forngrikkja og hinna
nýrri þjóða?
HG. 6. Að skýra frá nýustu uppgötvunum í gagnfræði?
K.J. 7. Að lýsa sveitabrag í einu eða fleirum hjeruðum?
S.G. 8. Hverskonar böð höfðu fornmenn?
P.B. 9. Hví er bíldinum sjaldnar beitt í hinni nýrri læknisfræði
en í hinni eldri?
J.Þ. 10. Hvað einkennir hverja öld í sögu Íslands 1. í bókmentum
11. Hvað einkennir hverja öld í sögu íslands 2. í Stjórn og lögum
S.G. 12. Hvað einkennir hverja öld í sögu Íslands 3. í búningi og byggingum?
HG 13. Víðátta himinsins?
H.G. 14. Dásemd náttúrunnar í stóru og smáu?
EirBr. 15. Hvað er einkenni vorrar aldar?
P.M. 16. Hverir hafa verið mestir málagarpar á Íslandi ?
JBj. 17. Í hverju er móðurmáli voru mest ábótavant og hver ráð eru til að bæta það?
Sv.Sk. 18. Að hverju leyti hafa Íslendingar fengið meiri þátt
en áður í stjórn landsins; við stofnun Alþingis og
hvaða þátt á Alþingi í framförum þess?

19. Hverir voru kostir og ókostir á stjórnarskipun landsins í fornöld?
MJ. 20. Hvað er skáldskapur málanna (sprogets Poetie)
S.SK
21. Skólasaga Íslands?
Sv.Sk. 22. Skólalífið á Bessastöðum?
23.Saga Reykjavíkur?
Þessum nýjum spurningum kom oss saman um að bæta víð:
S.G. 1. Nýjar uppgvötanir í fornfræði?
H. 3. Hvernig á Kvöldfjelagið" að styðja að þjóðhátíðinni?
4. Landnám Ingólfs og ættmenna hans?
H.St.5. Hvaða þýðingu hafa höfuðborgirnar fyrir löndin og svarar Reykja-
vík til þess fyrir Ísland?
H. 6. Hvaða gagn er að ,,Kvöldfjelaginu" og fjelögum yfir höfuð?
P.G. 7. Kaupmannafjelagið, gagn þess fyrir fjelagsmenn, Reykjavík og
landið?
8. Geta markaðir og sýningar gjört sama gagn hjer á landi og
í öðrum löndum eða yfir höfuð nokkurt gagn?
SSkúlason
H.E.Helgason G.Guðmundsson Eiríkur Briem.
- Gæði handrits:
- Athugasemdir: https://sigurdurmalari.hi.is/wiki/index.php?title=Fundur_21.n%C3%B3v.,_1867
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
- Dagsetning: 2024
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: