Fundur 14.nóv., 1867
Fundir 1866 | ||||
---|---|---|---|---|
29.jan. | ||||
7.feb.? | 15.feb. | 22.feb. | ||
1.mar. | 8.mar. | |||
5.apr. | 12.apr. | 25.apr. | ||
11.okt. | 18.okt. | |||
1.nóv. | 8.nóv. | 15.nóv. | 22.nóv. | 29.nóv. |
7.des. | 12.des. | 20.des. | •1867• |
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 14. nóvember 1867
- Ritari: Páll Blöndal
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti
Bls. 1 (Lbs 487_4to, 0031v)
Kveldfundur 14. Nóvember 1867
Á fundi þessum mættu 11 aað meðtöldum 2ur nýjum fje-
lagsmönnum, stud. theol Jón Bjarnason og
stud. theol. Benedikt Kristjánsson, er boðið
hafði verið í félagið. Las forseti upp
lögin fyrir þeim, og rituðu þeir nöfn
sín undir þau.
Forseti skýrði því næst frá, að hann
sæi eigi fært að ræða hið nýja frum-
varp til laga fyrir fjelagið, eins og ákveð-
ið var á síðasta fundi, af því að svo
fáir væru mættir af fjelagsmönnum.
Las þó forseti upp þetta nýja frumvarp
fyrir þeim er mættir voru, svo það
yrði þeim kunnugt. - Því næst skýrði
varaforseti frá, hvernig nefnd sú, er
sett var í fyrra til að athuga frumvarp þetta,
hefði litið á það, og hverju hún vildi
breyta í því.
Af því að eigi vera annað fundar-
efni fyrir eptir boðunarbrjefinu, þá
stakk forseti upp á því að menn
skyldu hafa sér til skemmtunar að
draga seðla með spurningum, og var það
samþykkt. Voru þá dregnir seðlar, og
hlaut forseti þessa spurningu til úrlausnar:
Bls. 2 (Lbs 487_4to, 0032r)
Hvort er nauðsynlegra að kunna sam-
lagningu eða frádragningu? Torfi Magnús-
son hlaut svohljóðandi spurningu: Er það
satt að manninn sé ekki lengi að bera
að konunni? Gjaldkeri félagsins hlaut
(spurninguna) seðil með þessu á: Fátt
er bezt um flest. Þýðing þess. Vara-
skrifari fjekk seðil, og var þetta á: Sittu
við eldinn sje þjer langt. Voru spurning-
ar þessar og spakmæli rædd á ýmsa
vegi, og komust menn á ýmsa niður-
stöðu.
Síðan voru kosnir 5 menn í nefnd,
til að semja nýjar spurningar og velja
úr hinum eldri, og voru þessir kosnir:
Sveinn Skúlason með 9 atkv.
Helgi Helgesen - 8 -
Halldór Guðmundsson - 6 -
Eiríkur Briem - 6 -
Gísli Magnússon - 5 -
Fundi slitið.
HEHelgesen
PBlöndal
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af: Eiríkur
- Dagsetning: 01.2013