Fundur 16.jún., 1861
Úr Sigurdurmalari
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 16. júní 1861
- Ritari: Eiríkur Magnússon
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti:
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0019v)
Ár 1861, laugar sunnu daginn hinn 16 júní, kl. 4. e.m. var fundur
haldinn í félaginu. Allir á fundi, nema J. Jónasson og
Jakob Björnsson.
1. Bar nefnd sú er á sínum tíma var kosin til þess, að
breyta lögunum, upp breytingar sínar við lögin
og voru þær samþykktar á löglegan hátt..
2. Disputeraði Sigrdr málari um íþrótt málara á Islandi
um allar herrans tíðir. Var þeirri disputatin slegið
á frest til næsta fundar sökum efnis ríkis.
3. disputeraði A Gíslason um skáldskap Bjarna
og Jónasar. Decanus var Brandur Tómasson
Opponentes E. Magnússon og S. Málari. Respondent
H. E Helgesen. [sk 1]
Fundi slitið.
H.E.Helgesen E. Magnússon
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: XX.XX.2011
Sjá einnig
Skýringar
- ↑
Decanus: Umsjónarmaður, umræðustjóri. "Decanus" hét sá sem hafði umsjón með hópi stúdenta (yfirleitt 12 í senn) í Kaupmannahafnarháskóla. (Decanus: lat. "tíu manna foringi." Af þessum stofni er enska orðið "dean": rektor, klerkur.) Sjá t.d. "Ævisaga Sveins læknis Pálssonar" Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn.(10.árg.1929) Bls. 14
Opponentes: Andmælendur
Respondent: Verjandi, meðmælandi