Fundur 16.feb., 1861

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.



Texti:

Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0013v)

Ár 1860<ref group="sk">Svo í handriti</ref>, laugardaginn hinn 16. febr. kl. 8 e.m. var haldinn

fundur í félaginu. Allir á fundi nema Þ. Egilsen sem hafði afsakað

sig við forseta frá að geta komið og var álitinn fallinn undir

laganna 14. § og Sigurður Guðmundsson málari, sem og var

álitinn fallinn undir sama §. Ísleifur Gíslason hafði og tjáð

forseta forfall sína, og bar fyrir sig að læknir hefði bannað honum

að fara út, og var hann undanþeginn sekt. Því næst var

rætt um sekt Brands Tómassonar, sem ljáði sig ófúsan

að borga 2v fyrir það, að hann ekki á formlegan hátt

hefði ljáð varaforseta forföll sín frá fundinum hinn

9. þ.m og var með atkvæða fjölda samþykkt að honum

bæri að greiða sektina með 2v.

2. Voru af Forseta upptekin nöfn félaganna og gefnar ástæður

fyrir nöfnunum. <ref group="sk">Rætt hafði verið að félagar tæku upp dulnefni til notkunar í fundargerðum. Sjá: Fundargerð 2. Feb. 1861 og 11. Feb. 1861</ref>

3. Var rætt um uppastúngu þessa Dantons E. Jónssonar um að hafa

merki undir nafninu; og var sú uppástúnga felld með




Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0014r)

11. atkvæðum gegn 2.

4. Var lesið upp "Samtal tveggja sauða um fjárkláðann" eptir

þá herra varaforseta og Þ. Egilsen. Var ritgjörðin tekin

inn í safn félagsins og merkt № 2.

5. Var rætt um hvort finna skyldi nú þegar að ritgjörðum

eða ekki er félaginu berast og var það samþykkt með 10. atkvæðum gegn 3.

að svo skyldi ekki vera fyrst um sinn.

6. Var stúngið upp á að bjóða Sýslumanni E. Melsteð í fé-

lagið og Factor |O. Finsen, var það samþykkt með atkvæða fjölda og var forseti kosinn til

að tala við hinn síðara en skrifari við hinn fyr talda.

Fundi slitið.

H.E.Helgesen/E. Magnússon






  • Skráð af: Eiríkur Valdimarsson
  • Dagsetning: Ágúst 2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tenglar