„Fundur 10.des., 1869“: Munur á milli breytinga
Lína 257: | Lína 257: | ||
===Bls. 6 ([http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0487#0080v Lbs 487 4to, 0080v])=== | ===Bls. 6 ([http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0487#0080v Lbs 487 4to, 0080v])=== | ||
hátt. | |||
Gísli Magn. Almenningur mundi hafa verið tregur til að | |||
leggja til vörðunnar hvort sem varðan hefði hrunið | |||
eða eigi, því þeir mundi eigi vilja leggja neitt fje | |||
til slíkrar byggingar. - (Fleyra sagði hann) | |||
Frummælandi: Hann veit ekki hvernin skólavörðu | |||
málið drógst ur höndum pilta. Nefndin hefir er til vill | |||
tekið það að sjer að ef góðvild sinni. Handverks- | |||
menn <sup><del>vini</del></sup> <del>fjelagið</del> hefir síst af öllu lagt vörðunni lið. | |||
Fleyra var og rætt um þetta mál sem hjer er | |||
eigi ritað og minna kvað að. - | |||
Til næsta fundar: 1 Eiríkur Briem um lífsá- | |||
byrgðarsjóði: Andmæl Haldór Guðmundsson og Gísli Magnússon | |||
2 Forseti: um Bakar og Tombolu, andm: O Finsen og H. | |||
Stephensen | |||
Fundi slitið Árni Gíslason | |||
---- | ---- |
Útgáfa síðunnar 16. janúar 2015 kl. 16:49
Fundir 1869 | ||||
---|---|---|---|---|
14.jan. | 21.jan. | 28.jan. | ||
4.feb. | ||||
4.mar. | 11.mar. | 18.mar. | ||
1.apr. | 17.apr. | |||
18.nóv. | 26.nóv. | |||
3.des. | 10.des. | •1870• |
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: XXX
- Ritari: XXX
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti
Bls. 1 (Lbs 487 4to, 0078r)
4. Kveldfundr
10/12
Forseti las fyrst upp aptr verðlaunaspurningar
og var tuginu bætt við.
Þessu næst var tekið til umræðu:
Er það gagn eða ógagn fyrir Reykjavík að
hafa fengið upp skólavorðuna eins og hún er?
Frummælandi H.E.Helgesen:
Skólapiltar reistu hana hér fyrst (fyrir 1830) hafði
þá verið lítilfjörl, áðr var Reykjavík enginn bær.
Krieger bjó til skólavörðustíginn og umgirti amt-
mannstúnið. Varðan f var þá ferköntuð, lítið
lægri (8 áln). trappa utan veggja, ei hol innan,
bindíng í henn upp og niðr og þversum, þegar
þeir fúnuðu hrundi hún. Viðr brúkaðar hita
með kaffi þins holtabúum. Piltar tóku aftr upp á
Bls. 2 (Lbs 487 4to, 0078v)
að koma henni upp, höfðu ei nóg fé, var
svo safnað fé í 2-3 ár, var það svo afhent Jóni
Arnar. fógeta, Guðm. á Hóln. er gengu í nefnd.
Þá safnað nýum tillögum og gant 1866 var
byrjað á henni. Hrundi. 1867 kom Melkjön
gaf mikið fé til hennar, síðan hefir fógeti staðið
fyrir að koma henni upp, þessi er því mest reist
af gjöfum fógeta, vildi láta bæinn taka að sér
vörðuna og skulina, hafa verið gjörð samskot.
Er því orðin nokkrskonar vandræðagripr fyrir
bæinn. Spurs Spurning er það í peninga-
legu tilliti fyrir Reykjavík gagn eða ógagn
að hún er komin upp? Ógagn.Er annað gagn
eða ógagn? Se annað gagnl. en peningar og <unclear>matr,</unclear>
þá gagnleg. Hún er mesta merki um Civilication,
er tilbúin vegna fegurðarinnar og sóma bæ-
arins. Bæarbúar ættu að sækjast eftir að styrkja
að henni fyrir sómans sakir. Siggi tók kvöð á
bæarbúum til hennar og foreldrum til barns. Þarf
að halda því við. Hún er nú veglegust af því sem hún hefir
verið. <unclear>Mim</unclear> kostr hennar að hún er til prýði. Er
depill fyrir göti til allra hliða, er til gagns fyrir sígl-
ingamenn og sjómenn. Er því gagn fyrir líf og
björg manna.
Sigurður málari. Frummælandi tekið flest fram
og fátt við það að bæta. Þegar þessi varða lá hrunin
Bls. 3 (Lbs 487 4to, 0079r)
þótti öllum mínkun Síðan var gengið milli ýmsra
og gekk seigt loks komst hún upp, og fáir vissu
af hvaða efnum. Svo varð hún fyrir aðfinnslum
af þeim niðra öllu sem gjört er en hrósa öllu því
sem ógjört er. Verið getur að henni hefði mátt
koma upp fyrir minna verð og að hún hefði orðið
sterkari ef hún hefði verið kringlótt, en sökum
þess að grjótið var tilhöggið ferkantað hefði hún
að öllum líkindum orðið dýrari sívöl. -
Varðan var í fyrstu eptirlíkingr af vörðunni á
Skálholti. - Gagn og fegurð: Þaðan er mest víð
sýni hjeðan bæði af landi og sjó. Varðan er
mikið stæðileg með lítilli viðgjörð og getur
orðið bezta byrjun til stórkostlegri byggingar og
jafnvel fyrir alþingishúsið stór sem eigi væri
álittækilegt og í öllu falli mun verða reist þar
stærri bygging með tímanum
Jón Ólafsson Varðan var byggð af skólapiltum til
þess að þeir gæti hitað sjer á að byggja hana
Reykvíkingar eru tregir til að leggja fje
til vörðunnar vegna þess að nefndin eigi hafi sjeð um
að þeir 200 Rdl sem til hennar voru fyrst gegnir eigi
Bls. 4 (Lbs 487 4to, 0079v)
sýnt að það hafi orðið til nota. Sig. Málari Nefndin
sjálf hefir lagt til meira fje en því svarar
Gísli Magnússon: Hann kom hingað unglingur með
naut og fór um hæðirnar á stiptamtmannstúninu
og þá var Robbs hús hæst Síðan fór hann í
bóknámsferð 1832 með sjera Búa og sá þá Kriger
Þá heyrði hann getið um götur en veit eigi hver gamlar
þær voru nje góðar Þegar frumm nefnir að bæjar
fógetinn hafi gengið bezt fram í að endurreisa skóla
vörðuna er oflint, hann hefir gengið ágætt fram
bæði með afli þreki og efnum svo hún annars
jafnvel aldrei hefði verið reist upp aptur. -
Orð frummælanda um gagn og fegurð eru sönn
þó má bæta því við að það er skuldbinding
fyrir Reykjavík einnin og einkum af virðingu fyrir
Kriger sem af eðallyndi sínu reisti einsamall. -
Þó margir finni að vörðunni þá dugir eigi að
kippa sjer upp við það, því það er hjer almennt að
allt er lastað sem gjört er. - En fallegri hefði varðan
samt verið attstrent því þá hefði hún verið óvana
legri; og skyldi hún falla fram í öldunum ein-
hvern tíma. Þá væri gott að rita kringlótta eða
áttstrenda ritgjörð í Þjóðólf eða Baldur svo
menn þá gæti vitað hvernin húnn ætti upp aptur
að byggjast
Bls. 5 (Lbs 487 4to, 0080r)
Getur verið að varðan hafi verið byggð sem líking vörðunn-
ar í Skálholti, en til hvers var varðan í Skálholti? Skóla-
piltar sem aðrir vegfarendur hafa byggt hana að gamni
sínu - Að byggja Alþíngishús hjá skólavörðunni er
ógjörandi og smekkleysa og óþægilegt fyrir þing-
menn og einkum tilheyrendur - Varðan ætti samt
að stækka þó án þess að það yrði fátækrahús. Að
gjöra fógetann skaðlausan er rjett en hann hefir ekki
haldið því svo fallega fram, - tam ábyrgð forstöðu
nefndarinnar á samskotunum getur ekki verið
spursmál þar sem hún ekki hefir sýnt eigingirni
nje áhugaleysi, og væri svo óviðurkvæmilegt að ekki
væri dæmi til.
Jón Ólafsson Nefndin hefir reist sjer hurðarás um
öxl, og það hefir gengið betur undir stjórn eins manns
en undir hennar umsjá en það var ekki meiningin að
hefja ábyrgð á hendur nefndinni, en það hefir meir tætt
en hvatt Reykvíkinga hvernin nefndinni tókst að
leysa starfa sinn af hendi.
Sig. Mál. Peningar eru stórt spursmál í slíku máli
hefði Varðan verið byggð hefði hun orðið að vera 4 x
stærri og þá ekki nokkrum hundruðum heldur þúsund-
um dýrari, sömuleiðis kringlótt. - Byggja má
við vörðuna og það getur orðið mjög fallegt á marga
Bls. 6 (Lbs 487 4to, 0080v)
hátt.
Gísli Magn. Almenningur mundi hafa verið tregur til að
leggja til vörðunnar hvort sem varðan hefði hrunið
eða eigi, því þeir mundi eigi vilja leggja neitt fje
til slíkrar byggingar. - (Fleyra sagði hann)
Frummælandi: Hann veit ekki hvernin skólavörðu
málið drógst ur höndum pilta. Nefndin hefir er til vill
tekið það að sjer að ef góðvild sinni. Handverks-
menn vini fjelagið hefir síst af öllu lagt vörðunni lið.
Fleyra var og rætt um þetta mál sem hjer er
eigi ritað og minna kvað að. -
Til næsta fundar: 1 Eiríkur Briem um lífsá-
byrgðarsjóði: Andmæl Haldór Guðmundsson og Gísli Magnússon
2 Forseti: um Bakar og Tombolu, andm: O Finsen og H.
Stephensen
Fundi slitið Árni Gíslason
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af: Eiríkur; olga (Wiki)
- Dagsetning: 01.2013