Fundur 3.des., 1869

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1866-71.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti

Bls. 1 (Lbs 487 4to, 0076v)


3. Kveldfundur.

3/11* [ATH]

Fyrst las forseti upp nefndarálitið og

bauð upp verkefnaspurningarnar

Síðan var talað um að taka fyrir til um

ræðu á næsta fundi: "En gagn eða ógagn fyrir

Reykjavík að hafa fengið Skólavörðu á þann hátt sem orðið er". Frummælandi H E Helgesen

andmælendur: Skúli Magnússon og Sigurður

Guðmundsson og til vara ef tími yrði af-

gangs átti Eldjárn Þórarinsson að segja "ferða

sögu"

Þessu næst var tekið til umræðu:

"eigum vjer að hata eða elska Dani" Jón

Ólafsson frummælandi og andmælendur:

Hannes Stefensen og Sigurðr Guðmundsson

Frumm. Hann byrjaði á því að álíta það sjálf-

sagt að hata Dani og bætti því við að vjer ættum

líka að fyirlíta þá og sagði hann að ekkert

illt væri það hjér á landi sem ekki væri frá

Dönum Krukkspá segir að af langveðrum og laga

leysi muni land vort eyðast en hann sagði að

Bls. 2 (Lbs 487 4to, 0077r)


að landið mundi eyðast af doða og Dönsku, en

deyfðin er Dönum að kenna og þeirra bölvuðu

og vitlausu stjórn og þeim er það að kenna að þjóð

<unclear>emið</unclear>hefur spillst þeir hafa tryllt Islendinga þá

sem til Hafnar hafa farið og gjört ur goðum Islend-

ingi Danska meinmagnaða apturgöngur frelsi voru

hafa þeir stolið og fornfrægð vora hafa þeir af öllu

mætti troðið í saur. Þeir hafa níðst á oss og beitt

við oss ofbeldi. Þegar búið hefur verið að níðast á þeim

og hýða þá hafa þeir aptur svalað bræði sinni á

oss hann álítur að börnin Íslensku ættu að drekka

í sig Dana hatur með móðurmjólkinni: og þótti

honum æskil. og happavænl. ef hjer kæmu fana-

firme og mundu það verða blessun fyrir land og lyð

Hannes St. Honum þótti Jón ekki hafa órjett í því að

Danir spylltu Islendingum sem til Hafnar fara

og kvað það vel gjört af Dönum að taka þá til mentun

ar en þeim sjálfum að kenna ef þeir spilltust

og um deyfðina væri það að segja að hún yrði alltaf

verri því meira sem Danir slepptu taumhaldinu

hann kvað og Íslendinga hafa minni ástæðu til að

kvarta undan Dönum en Hertogadæmum

frumm. Sagði að Danir gjörðu bolvanl. í því að vilja inn-

lima oss í sína þjóð sem raunar engin þjóð væri;

hann sagði Donum gengi ekki gæðskan til að láta

Islendinga hafa góð kjör við háskólan heldur póli

tískt svikabragð því lögfræðingana hafa þeir gjört

að Donskum kreaturum og látið þá gleyma innlendu lögum

Bls. 3 (Lbs 487 4to, 0077v)


hann sagði að Danir mundu hafa borið vopna á

oss ef þeir hefði þorað fyrir öðrum þjóðum-

H. St. sagði að oss færist ekki að láta svona mikið

aðrir eins vesælingar.

S. Guðm. Sagði að frummælandi hefði í öllu rjett, og

sagði til upplysingar söguna af niðingnum Una

hinum danska sem fyrrstum kom hjer af þeirri

þjóð og svo hefði öllum dönum farist við oss

síðan hann gat um það að Islendingum hefði

hefði verið bannað að lesa sögurnar til að láta

gleyma þjóðerni sínu hann endaði með því

að stinga upp á því að Dönum væri reist níð-

stöng með hrosshaus á hverjum Islenskum

hól og haug. að fornum sið. -

Forseti: Hann sagði að það væru fremir þyskir kon-

ungar og ráðgjafar sem hefði kúgað oss (S.G nú

er þjóðin verri) hann sagði að í gamla daga hefði

Danir liðið með oss en nú á seinni tímum sagði hann bæði

kaupm. og aðrir hafi verið oss góðir að undantekn.

fáum svo sem <unclear>Lomann</unclear> á vorri tíð. Danir eru

reyndar vondir ef þeir vita af því þeir eru danir

S.g. Það er lífsspursmál af hata Dani og það er

oss eini þrifaþröskuldurinn fyrir oss að vjer

hofum ekki lært að hata þá það eigum vjer að

kenna börnum vorum "opt bítur sú túkin sem

undir liggur sannast á Dönum Islendingum

Forseti: er á sama máli og frumm. ef hann kallar ófrelsu

og kúgun nafninu Dani

JO. Öll Dana þjóð er búin að læra að fóttroða þá Ísl

Bls. 4 (Lbs 487 4to, 0078r)

S.G. Danir hinir góður eru sem krækiber í helvíti

á móti þeim bölvuðu sem systematiskt halda oss

í skítnum þeir eru mosavagsnir hrosshausar

sem Islendingar detta um í hverju spori á vegin-

um til framfara og dugnaðar

Fundi slitið

H.E.Helgesen Eldjárn

10/12











  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af: Eiríkur, olga (Wiki)
  • Dagsetning: 01.2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar