Fundur 20.apr., 1861
Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 20. apríl 1861
- Ritari: Eiríkur Magnússon
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Lykilorð: húsnæði, skáldskapur,
- Umræðuefni: Kvæði eftir Árna Gíslason ("Stúlkuvísur" og "Unnustumissirinn, harmasöngur"), samband ljóss og myrkurs
- Nöfn tilgreind: Árni Gíslason, J.Árnason,Eyjólfur Jónsson og Steinn Steinsen, Viðstaddir: allir félagsmenn nema Jónas H. Jónasson
Texti:
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0017r)
Sama ár laugardaginn hinn 20. Apríl kl. var
fundur haldinn í félaginu, ekki fyrri en kl. 8 1/2 vegna
þess að húsnæði brast. Allir á fundi, nema J. Jónassen
sem tilkynnt hafði forföll sín.
1. Voru upplesin 2 kvæði frá A. Gíslasyni, annað
með yfirskrift "Stúlkuvísur" hitt: Unnustumiss-
irinn, harmasöngur." Voru þau síðan tilfærð á
ritgjörðalista félagsins.
2. Var ákveðið að halda fundi framvegis í ár á sunnudögum, kl. 4. e.m.
3. Diputeraði varaforseti um samband ljóss og myrkurs. Re-
spondent var J.Árnason. Oppónentar voru Forseti og A. Gíslason.
4. Disputeraði Varaskrifari fyrir því að allt þetta sér narraskapur.
Respondent var varaforseti, Opponentar E. Jónsson og S. Steinsen.
- Skráð af: Eiríkur Valdimarsson
- Dagsetning: 12.2012