„Endurbætt lög félagsins“: Munur á milli breytinga
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 264: | Lína 264: | ||
[[File:Lbs_486_4to,_0009r_-_18.jpg|380px|thumb|right|
[http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0009r Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]]] | [[File:Lbs_486_4to,_0009r_-_18.jpg|380px|thumb|right|
[http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0009r Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]]] | ||
=== | === ([http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0009r Lbs 486_4to, 0009r])=== | ||
Lína 328: | Lína 328: | ||
[[File:Lbs_486_4to,_0009v_-_19.jpg|380px|thumb|right|
[http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0009v Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]]] | [[File:Lbs_486_4to,_0009v_-_19.jpg|380px|thumb|right|
[http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0009v Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]]] | ||
=== | ===([http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0009v Lbs 486_4to, 0009v])=== | ||
agsins til þeirra. | agsins til þeirra. | ||
Lína 388: | Lína 388: | ||
[[File:Lbs_486_4to,_0010r_-_20.jpg|380px|thumb|right|
[http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0010r Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]]] | [[File:Lbs_486_4to,_0010r_-_20.jpg|380px|thumb|right|
[http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0010r Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.]]] | ||
=== | ===([http://handrit.is/is/manuscript/imaging/is/Lbs04-0486/1r-140v#0010r Lbs 486_4to, 0010r])=== | ||
að ⅔ allra félaga, er hér búa þá í bænum, gefi henni | að ⅔ allra félaga, er hér búa þá í bænum, gefi henni |
Nýjasta útgáfa síðan 11. ágúst 2016 kl. 21:40
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 27.(?) janúar 1861
- Ritari: Helgi E. Helgesen, Eiríkur Magnússon
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Lykilorð:
- Umræðuefni:
- Nöfn tilgreind: Árni Gíslason, Brandur Tómasson, Christian Zimsen, Eggert Sigfússon, Eiríkur Magnússon, Eyjólfur Jónsson, Gísli Magnússon, Hallgrímur Sveinsson, Helgi E. Helgesen, Hjörtur Jónsson, Ísleifur Gíslason, Jón Árnason, Jón Þorkelsson, Jón Jónsson Hjaltalín, Jónas Guðmundsson, Jónas H. Jónasson, Markús Gíslason, Matthías Jochumsson, Óli Finsen, Páll Sigurðsson, Pétur Gudjohnsen yngri, Sigurður Guðmundsson, Sveinn Skúlason, Þorsteinn Jónsson, Þorvaldur Jónsson
Texti
(Lbs 486_4to, 0007r)
Endurbætt lög félagsins
Félag vort er öndverðlega stofnuð af nokkrum úngum
monnum, af því að þeir hafa fundið hjá sér þörf og löng-
un að safnast saman eptir dagsins erviði til þess, að
lífga anda sinn á þann hátt, er samboðinn sé siðferðis-
lega menntuðum mönnum og hafa þeir sett sér þessi
lög:
§ 1.
Félag vort heitir
§ 2.
Tilgangur félagsins er að reyna að vekja innlent líf sér í lagi í
kveðskap og fögrum menntum.
§ 3.
Fund skal halda í félaginu laugardag í viku hverri kl. 8. e.m.
frá 8. okt. til 31. marz; en úr því annaðhvert laugardags-
kvöld, þangað til 31. maí; og skal þá fundarhaldi félagsins
fyrir það ár komið. Um aukafundi fer sem síðar
segir.
§ 4.
Hin almennu störf félagsins skulu vera þessi: að ræða á
(Lbs 486_4to, 0007v)
fundum fróðleg og vísindaleg efni þannig, að annaðhvort draga
menn skriflegar spurningar, eða halda dispútatíur, eða hafa
saungskemmtanir, eða láta forseta stinga uppa fundar-
starfi. Utan funda setja menn lög við innlendan kveðskap,
semja ritgjörðir, smásögur, leikrit, æfintýri, kvæði, skáld-
sögur, ferðasögur, héraðslýsingar, lýsingar á háttum manna
og sveitabrag, gátur, fyrirburðasögur, loptsjónalýsingar, og
sérhvað annað, er að þjóðlegum fróðleik og þjóðlegri
fegurð lýtur, og tekur félagið fegins hendi við öllum
þess konar tilraunum.
§ 5.
Félagar varist allt, er hróflað geti augnamiði fund-
anna.
§ 6.
Sá sem ekki er kominn á fund, þegar hann er settur
leggi 16 s í sjóð félagsins. Sá sem ekki er kominn kl. 9
eða alls ekki rækir fund, skal leggja helmingi meira.
Þó skal hann ekkert leggja, hafi hann skriflega til-
kynnt forseta, að hann ekki geti sótt fund sökum
skyldustarfa stöðu sinnar, og félagið álíti afsökun
hans, sem á að vera tekið fram í ákveðnum orðum,
fullgilda. Að öðrum kosti leggi hann í félagssjóð
16 s.
§ 7.
Í öllum almennum málum ræður afl atkvæða.
§ 8.
Ályktanir þær, er varða félagið mikla skulu ekki
(Lbs 486_4to, 0008r)
álítast gildar, nema þá, er ⅔ allra þeirra félaga, er
búa hér í bænum, eru á fundi, og skal á afl atkvæða
ráða.
§ 9.
Á næsta fundi fyrir miðjan apríl vor hvert skal
leggja fyrir félagsmenn allt að 3 verðlaunaspurn-
ingum; úrlausnir þeirra sendist forseta án undir-
skriptar höfundarins, en auðkenndar með einhverju
merki (motto). Skal þeim fylgja innsiglað bréf með
sama merki utan á, en nafni höfundarins innan í.
Úrlausnir þessar afhendist forseta fyrir síðasta marts
næsta ár. Skulu þar lesnar upp á næsta fundi eftir að
þær koma inn, og sé um leið skipuð 5 manna nefnd
til að dæma um ritgjörðir þessar. Sé spurningar og
úrlausnir svo ólíkt eðlis, að einni nefnd þykir ekki
fært að dæma þær allar, skal kjósa 3 manna nefnd
fyrir úrlausn hverja.
§ 10.
Hverjum félagslim skal heimilt, (að) á fundi að gjöra
uppástungu um, að taka nýja meðlimi inn í félagið.
Kemur þá sú uppástunga til umræðu og atkvæðagreiðslu.
Verði atkvæði með því, að honu sé boðið, að ganga í
félagið, skal velja þann úr flokki félagsmanna, er hon-
um er kunnugastur til að bjóða honum að ganga í
félagið. Skal sá gæta allrar varúðar, og gefa honum
sem minnstar og almennastar upplýsingar um fé-
lagið, en þó engar fyr, en hann hefur bundist þagnar-
heiti við hann.
(Lbs 486_4to, 0008v)
§ 11.
Félagar greiði á fyrsta haustfundi árstillag í félaginu
er nemi 1 rd (!) Nýjir félagar gjaldi þegar við inntök-
una sama tillag.
§ 12.
Félagið á síðasta vorfund 31.(marts) maí ár hvert.
§ 13.
Þeir félagar, sem burtu fara, og eigi ætla sér, að standa
í sambandi við félagið framvegis, skulu segja sig bréf-
lega úr því. Þeir sem burt víkja úr félaginu án þessarar
bréflegu tilkynningar, eru að vísu félagar, en félagið
hefur ekkert bréflegt samband við þá. En þeir sem óska
að standa í bréflegu sambandi við félagið, skulu fá að
vita helstu störf þess, og (ill) stutt yfirlit innsendra
ritgjörða í bréfum frá félaginu tvisvar á ári með póst-
um í october (!) og marts, og eftir að fundum er hætt á vorin. Þess-
ir félagar borgi árstillög á við aðra félaga, ef þeir ekki
senda félaginu ritgjörðir, ella eru þeir gjaldfríir. Þeir
skulu og fá (eftirrit) að kaupa eftirrit af ritgjörðum,
ef þeir óska þess, þó þannig, að þeir borgi burðareyri
fyrir þær.
§ 14.
Forseti skal vera einn í félaginu. Sé hann valinn
á hverjum fyrsta haustfundi. Skal hann þá þegar
rekja fundarhald félagsins með ræðu til félaga. Á síð-
asta ársfundi skal hann skýra frá efnahag-ástandi (!) og
framförum félagsins. Hann kallar menn til funda og
(Lbs 486_4to, 0009r)
stjórnar þeim, kveður á um fundarefni og skipar
fyrir umræðum fundanna. Hann ræður atkvæða-
greiðslu, og hefur úrskurðaratkvæði, þegar atkvæði eru
jafnmörg. Hann slítur jafnan ársfundarhaldi félags-
ins 31. maí á vor með ræðu, og skulu honum þá afhent
skjöl bækur og fé þess.
§ 15.
Óski nokkur aukafundar, tilkynnir hann það forseta;
kallar hann þá menn til fundar, ef honum finnst
ástæða til þess, með boðskröfu, er gangi milli félags-
manna ekki seinna, en daginn áður; en félagar skrifi
nöfn sín á það. Skulu allir félagar jafnskyldir, að mæta
á þeim fundum, sem hinum fast ákveðnu.
§ 16.
Á fyrsta haustfundi ská jafnan kjósa, auk forseta,
einnig skrifara og gjaldkera félagsins, og eru þessir 3
embættismenn þess. Samfara þessum kosningum
skal kjósa varaembættismenn félagsins. Enginn einn
má hafa nein tvenn af störfum þessum á hendi.
§ 17.
Skrifari heldur gjörðabók félagsins, sé hún staðfest af
forseta; ritar (srif skrifari í hana það, er fram fer
á fundum, S safnar þeim í eitt með árituðum
númerum, og skal það safn heita bréfasafn fé-
lagsins (Bsf.№). Í fundalok skal bókin lesin upp
og úndirskrifuð af forseta og skrifara. Skrifari heldur
lista yfir bréflega félagslimi, og færir til bóka bréf fé-
(Lbs 486_4to, 0009v)
agsins til þeirra.
§ 18.
Gjaldkeri heldur bók, staðfesta af forseta, yfir fjár-
hag félagsins, og gjörir skýrslu fyrir honum í lok
hvers mánaðar, er lesin sé upp á fundi og undirskrif-
uð af forseta og gjaldkera. Á síðasta vorfundi skal
hann gjöra ársskýrslu um fjárhag félagsins, og
leggja hana fram fyrir félagslimi. Gjaldkeri veitir
móttöku tillögum öllum og gjörðum.
§ 19.
Vilji nokkur af þeim félögum, er búa hér í bæn-
um, segja sig úr lögum við félagið, skal hann gefa
það forseta bréflega til kynna; en forseti lýsir því
á fundi og skrifari bókar.
§ 20.
Allir félagar lofi við drengskap sinn, að þegja
yfir fundum, yfir nafni félagsins, og öllu, er gjör-
ist í því. Sá sem uppvíst verðr um, að hafi bor-
ið út nokkuð af félagsins gjörðum, er félagsrækur,
og á hann ekki apturkvæmt í það. Þagnarheit-
ið er og bindandi fyrir þá, sem úr félaginu fara
ár frá ári
§ 21.
Finni menn ástæðu seinna meir, til að breyta lögum
þessum, skal sú breyting ekki löggild, nema því að eins,
(Lbs 486_4to, 0010r)
að ⅔ allra félaga, er hér búa þá í bænum, gefi henni
atkvæði.
§ 22.
Félagar skuldbundi sig til hlýðni við lög félags
þessa með undirskrifuðu eiginnafni sínu.
H E Helgesen E. Magnússon. Þorvaldur Jónsson. Jón Árnason. Isl. Gíslason
Arni Gíslason Eyjólfur Jonsson. Brandur Tómasson.
P Sigurðsson J A Hjaltalín Markús Gíslason. Matt. Jochumsson
H Sveinsson. Sigurðr Guðmundsson. Jónas H. Jonassen. Eggert Sigfusson
O Finsen G Magnússon. Hjörtr Jónsson.
C Zimsen (!) Jón Þorkelsson. Skúlason.(!) Þorsteinn Jónsson
- Skráð af: Eiríkur Valdimarsson
- Dagsetning: 30. desember 2012
Sjá einnig
Skýringar